Sara Dögg Hjaltadóttir, leikstjórnandi ÍR, var á dögunum valin í A-landsliðið í fyrsta sinn fyrir tvo leiki gegn Svartfjallalandi í undankeppni EM 2026. „Líðanin er mjög góð. Mér finnst ótrúlega gaman að fá tækifærið,“ segir Sara Dögg í samtali við handbolta.is
Á yfirstandandi tímabili hefur hún verið einn besti leikmaður Olísdeildarinnar og sýnt mikinn stöðugleika. Mikla athygli vakti þegar Sara Dögg, sem er markahæst í Olísdeildinni, var ekki á 35 manna lista Arnars Péturssonar landsliðsþjálfara fyrir HM 2025, sem þýddi að ekki var hægt að velja hana í lokahópinn hefði svo farið að einhver leikmaður dytti út úr honum.
Ekkert sem ég gat stjórnað
Sara Dögg viðurkennir að hafa verið svekkt að vera ekki eitt af nöfnunum á listanum.
„Já, alveg smá. Manni langar alveg að vera í landsliðinu en þetta var ekkert sem ég gat stjórnað. Ég var ekkert að pæla í þessu, ég var bara að hugsa um að bæta sjálfa mig. Ég hugsaði aðallega um það.
Auðvitað pældi maður í þessu því það var alltaf verið að ræða þetta svolítið mikið. Ég var alveg smá svekkt en ég gat ekki stjórnað þessu þannig að ég reyndi að einblína á sjálfa mig,“ segir hún.
Pældi eiginlega ekkert í því
Hvenær sástu að það væri raunhæft fyrir þig að komast í A-landsliðið?
„Ég veit það ekki alveg. Ég vissi ekkert hverju ég átti að búast við. Ég var auðvitað ekki á þessum 35 manna lista þannig að ég var ekkert að búast við því að vera valin ef ég á að vera alveg hreinskilin.
Mér finnst það bara frábært og er ótrúlega þakklát fyrir að hafa verið valin og fá tækifærið. Ég pældi eiginlega ekkert í því og reyndi að einblína á sjálfa mig, að bæta mig sjálfa sem leikmann og reyna að bæta liðið okkar ÍR,“ segir Sara Dögg.
„Solla sagði að ég þyrfti að vera meiri frekja“
Spurð hvort hún sé bjartsýn á að spila sinn fyrsta A-landsleik í komandi landsleikjaglugga í byrjun næsta mánaðar segir Sara Dögg:
„Auðvitað vonast maður alltaf til þess en ég er bara nýkomin inn í þetta. Ég þarf að komast inn í kerfin og allt það. Þetta er eitthvað sem ég stjórna ekki heldur. Ég verð að einblína á að hugsa um sjálfa mig og gera mitt besta. Svo kemur allt annað í ljós.“



