Slóveninn Ales Pajovic er sagður verða næsti þjálfari þýska handknattleiksliðsins Flensburg-Handewitt. Pajovic er landsliðsþjálfari Austurríkis en samningur hans um þjálfun landsliðsins rennur út um mitt þetta ár.
Sport-Bild segir frá þessu tíðindum í dag samkvæmt heimildum en hvorki félagið né austurríska handknattleikssambandið vilja neita eða játa því að Pajovic taki við.
Forráðamenn Flensburg hafa síðustu vikur leitað að þjálfara eftir að Daninn Nicolej Krickau var látinn taka pokann sinn um miðjan desember eftir rúmt ár í stóli þjálfara. Ýmsir hafa verið nefndir til sögunnar, þar á meðal Dagur Sigurðsson landsliðsþjálfari Króatíu. Dagur sagði á dögunum fregnir um að hann taki við Flensburg vera úr lausu lofti gripnar.
Glenn Solberg fyrrverandi landsliðsþjálfari Svíþjóðar og eitt sinn leikmaður Flensburg auk Nikolaj Jacobsen landsliðsþjálfari Danmerkur hafa einnig verið orðaðir við starfið. Jacobsen þykir ólíklegur enda í góðu starfi hjá danska handknattleikssambandinu næstu fimm ár.
Ekki kemur fram hvort Pajovic taki við á næstu dögum eða í sumar ef hann tekur við starfinu á annað borð.
Pajovic tók við þjálfun austurríska landsliðsins snemma árs 2019 af Patreki Jóhannessyni. Um árabil var Pajovic einn allra fremsti handknattleiksmaður Slóvena.