Perla Ruth Albertsdóttir landsliðskona í handknattleik og leikmaður Selfoss skoraði eitt af fjórum snotrustu mörkum undankeppni Evrópumóts kvenna í handknattleik. Þetta er mat Handknattleikssambands Evrópu, EHF, sem tekið hefur saman myndskeið af þeim mörkum sem þóttu bera af öðru af glæsileika.
Markið góða skoraði Perla Ruth í leik íslenska landsliðsins við það færeyska á Ásvöllum í lokaumferð undankeppninnar sunnudaginn 7. apríl. Perla Ruth og félagar unnu leikinn, 24:20, og innsigluðu þar með annað sæti 7. riðils undankeppninnar.
Myndskeið með mörkunum fjórum:
Bringing 𝐭𝐡𝐞 𝐡𝐞𝐚𝐭 into the #ehfeuro2024 Draw🔥😏 Favourite goal from the Qualifiers?⬇️ #catchthespirit pic.twitter.com/QfVjWiF2Sh
— EHF EURO (@EHFEURO) April 18, 2024
Dregið var í riðla lokakeppninnar í Vínarborg í gær.
Sjá einnig:
Íslenska landsliðið leikur í Innsbruck á EM 2024
„Við getum látið okkar hlakka til EM“
Ísland verður með í fyrsta sinn í 12 ár – dregið í dag
Tvær með EM reynslu – þó ekki af sama móti
Ísland fer á EM 2024 – Færeyingar komust einnig