- Auglýsing -

Reistad og Gidsel best – Emmenegger og Barrufet efnilegust

 

- Auglýsing -


Henny Reistad, miðjumaður norska landsliðsins og Esbjerg í Danmörku, og Mathias Gidsel, hægri skytta danska landsliðsins og Füchse Berlin, eru handknattleiksfólk ársins 2025 að mati Handknattleikssambands Evrópu, EHF. Mia Emmengger frá Sviss og Ian Barrufet frá Spáni, voru valin efnilegustu leikmenn Evrópu um þessar mundir. Niðurstaða kjörsins var tilkynnt í gær um leið og dregið var í riðla Meistaradeildar kvenna og karla.


Verðmætasti leikmaður í kvennaflokki: Henny Reistad

Norski miðjumaðurinn Henny Reistad heldur áfram að bæta sig og tímabilið 2024/25 var frábært þessari 26 ára konu. Á EM 2024 var hún næstmarkahæsti leikmaður mótsins þegar Noregur vann gullið, var með flestar stoðsendingar á mótinu og var valin í úrvalslið mótsins sem miðjumaður. Í Meistaradeild EHF kvenna 2024/25 var Reistad markahæsti leikmaður keppninnar með 154 mörk fyrir Team Esbjerg og bætti 15 mörkum við í EHF FINAL4. Er hún sú markahæsta í sögu úrslitahelgarinnar með alls 94 mörk. Að auki endurheimti Reistad titilinn sem besti handboltamaður heims hjá IHF (Alþjóða handknattleikssambandinu) á síðasta ári.

Verðmætasti leikmaður í karlaflokki: Mathias Gidsel

Þrátt fyrir að hafa misst af titlinum í Machineseeker Meistaradeild EHF átti Mathias Gidsel ótrúlegt ár 2024/25. Daninn var valinn verðmætasti leikmaður og var markahæstur á HM karla 2025 með 74 mörk og á Ólympíuleikunum í Frakklandi. Hann var einnig með flestar stoðsendingar á HM. Gidsel var valinn besti leikmaður heims af IHF fyrir árið 2024 — í annað sinn. Með félagsliði sínu, Füchse Berlin, skoraði Gidsel 135 mörk í Meistaradeildinni, þar af níu í TruckScout24 EHF FINAL4, þar sem Berlin endaði í öðru sæti. Gidsel var einnig lykilmaður í sigri Berlin í þýsku úrvalsdeildinni og var valinn verðmætasti leikmaður þýska tímabilsins.

Mia Emmenegger fagnar marki í leik með landsliði Sviss á EM á síðasta ári. Ljósmynd/EPA

Besti ungi leikmaðurinn í kvennaflokki: Mia Emmenegger

Svissneska hægri hornakonan sló í gegn á EM á síðasta ári, þá 19 ára, skoraði alls 30 mörk og var tilnefnd sem einn af bestu ungu leikmönnum mótsins. Á félagsliðsstigi lék Emmenegger sitt fyrsta tímabil í Meistaradeild EHF kvenna, byrjaði með Vipers Kristiansand áður en hún gekk til liðs við Team Esbjerg. Hún skoraði fimm mörk í leiknum um þriðja sætið á EHF FINAL4 kvenna í Búdapest og lagði sitt lóð á vogarskálar í sigri á Esbjerg á Metz.

Besti ungi leikmaðurinn í karlaflokki: Ian Barrufet

Spænski hornamaðurinn er 21 árs gamli leikmaðurinn. Hann sýndi miklar framfarir á tímabilinu 2024/25. Hann var í láni hjá MT Melsungen í Þýskalandi frá Barcelina. Hjá Melsungen. blómstraði Barrufet og endaði tímabilið sem markahæsti leikmaður EHF Evrópudeildar karla með 90 mörk, auk þess að enda í þriðja sæti í þýsku úrvalsdeildinni og öðru sæti í þýska bikarnum með félagsliði sínu. Að auki skoraði Barrufet 11 mörk í sínu fyrsta HM með spænska landsliðinu.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -