Kórdrengir hafa náð samkomulagi við Róbert Sighvatsson um að taka við þjálfun liðsins en lið Kórdrengja verður nýliði í Grill66-deild karla.
Róbert lék með Víkingi og Aftureldingu hér heima og Schutterwald, Düsseldorf, Dormagen og Wetzlar á leikmannaferli sínum. Róbert sneri sér að þjálfun þegar leikmannaferli hans lauk og hefur hann þjálfað Víking og Þrótt hér heima og síðar um skeið Wetzlar í þýsku 1. deildinni.
Róbert lék 160 leiki með íslenska landsliðinu á sínum tíma og skoraði í þeim leikjum 243 mörk.
„Kórdrengir eru með háleit markmið og höfum við trú á að Róbert sé rétti maðurinn í verkið. Við erum spenntir fyrir komandi tímum og bjóðum Róbert velkominn,“ segir m.a. í fréttatilkynningu frá handknattleiksdeild Kórdrengja.
Fyrsti leikur Kórdrengja í Grill66-deildinni verður gegn ungmennaliði Aftureldingar á laugardaginn á Varmá.