- Auglýsing -
- Auglýsing -

Risastórt skref fram á við fyrir okkur

- Auglýsing -

„Ég er ótrúlega stoltur af strákunum sem hafa verið vaxandi að mínu mati í síðustu þremur leikjum,“ sagði Gunnar Steinn Jónsson þjálfari Fjölnis eftir ævintýralegan sigur liðsins á Stjörnunni, 29:28, í Olísdeild karla í handknattleik í Fjölnishöllinni í kvöld. Þetta var annar sigur Fjölnis í deildinni og situr liðið í áttunda sæti.

„Við vissum að við gætum unnið Stjörnuna. Fæðingin var hinsvegar erfið. Mér fannst við vera með möguleikana í okkar höndum. Þeir voru með markvörslu, nokkuð sem við vorum ekki með lengi vel. Það varð til þess að Stjarnan var lengi með yfirhöndina,“ sagði Gunnar.

Fjölnir var tvisvar sex mörkum undir í síðari hálfleik en leikmenn lögðu aldrei árar í bát. Gunnar sagði þá staðreynd að liðið vann upp sex marka forskot og tókst að sigra í leiknum vera risastórt skref fram á við.

Lengra viðtal er við Gunnar í myndskeiði efst í þessari grein.

Staðan og næstu leikir í Olísdeildunum.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -