Róbert Gunnarsson varð Evrópumeistari tvö ár í röð með Gummersbach. EHF-meistari 2009 og Evrópumeistari bikarhafa 2010. Þá var hann fyrirliði liðsins og lyfti Evrópubikarnum.
Kristján Arason var fyrsti Íslendingurinn til að vera í herbúðum Gummersbach og varð hann Þýskalandsmeistari með liðinu 1988.
Aðrir Íslendingar sem hafa verið í sveitasælunni í Gummersbach eru:
Leikmaður og þjálfari: Guðjón Valur Sigurðsson.
Þjálfari: Alfreð Gíslason.
Leikmenn: Júlíus Jónasson, Sverre Andreas Jakobsson, Guðlaugur Arnarsson, Róbert Gunnarsson, Elliði Snær Viðarsson, Teitur Örn Einarsson, Hákon Daði Styrmisson og Óðinn Þór Ríkharðsson.
Miðasala á handboltaveisluna í Kaplakrika í dag, þriðjudag, er á stubb.is – smellið hér.
Evrópukeppni félagsliða – fréttasíða.
Jón Hermann skoraði fyrst gegn Gummersbach
20 viðureignir gegn liðum frá Portúgal
Guðjón Valur mætir með lærisveina sína í Kaplakrika