Spánverjinn Rafa Guijosa sendi frá sér neyðarkall þar sem hann er staddur í Teheran, höfuðborg Íran. Hann segist vera innilokaður í borginni og síður en svo í öruggu sambandi við umheiminn. Hann óskar eftir vernd eða aðstoð við að komast frá Íran en ringulreið ríkir í borginni eftir að stríð hófst á milli Ísraels og Írans.
Guijosa er einn þekktasti handknattleiksmaður Spánar á síðari árum og var m.a. valinn besti handknattleiksmaður heims 1999. Hann er landsliðsþjálfari Írans í handknattleik karla og hefur unnið í landinu síðan í september.
Í skilaboðum frá Guijosa, sem spænskir fjölmiðlar segja frá, lýsir hann hræðilegu ástandi í Teheran. Stjórnleysi ríkir. Hann segir einu leiðina út úr landinu sé að aka 1.300 km leið til Tyrklands. Slík ferð sé afar hættuleg og nánast óðs manns æði að leggja út í. Enn áhættusamara geti verið að komast með bát til Dubai eða Katar.
Guijosa biðlar til allra þeirra sem geti rétt sér hjálparhönd við að komast burt úr landinu, fyrr en síðar.