- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Sex rauð spjöld og vítakastskeppni í „Hinu eilífa stríði“

- Auglýsing -

Erkifjendurnir Wisla Plock og Industria Kielce mættust í æsispennandi leik í pólsku úrvalsdeildinni í handknattleik karla um liðna helgi þar sem Plock hafði að lokum betur eftir vítakastskeppni. Í pólsku deildinni lyktar leikjum aldrei með jafntefli; gripið er til vítakastskeppni til að skera úr um sigurvegara.

Grunnt er á því góða milli liðanna og fóru sex rauð spjöld á loft ásamt því að tveggja mínútna brottvísanir voru alls 16. Einvígið er kallað „Hið eilífa stríð“ í Póllandi enda um að ræða tvö langsamlega sterkustu lið landsins sem eru fornir fjendur.


Ansi hart var barist þar sem þrjár tveggja mínútna brottvísanir höfðu verið dæmdar og eitt rautt spjald var farið á loft eftir aðeins tíu mínútna leik.

Þeim fjölgaði í sífellu og skildi ekkert á milli liðanna að loknum venjulegum leiktíma. Þá var staðan 28:28 en Plock hafði betur í vítakastskeppninni, 4:3, og vann leikinn því 32:31.

Plock er á toppnum með 56 stig og á leik til góða á Kielce, sem er sæti neðar með 55 stig.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -