- Auglýsing -

Sigurður Páll ætlar sér upp í efstu deild með Víkingi

Sigurður Páll Matthíasson t.v. ásamt Aðalsteini Eyjólfssyni þjálfara Víkings. Ljósmynd/Víkingur
- Auglýsing -


Handknattleiksdeild Víkings hefur framlengt samning við Sigurð Pál Matthíasson, öflugan línumann meistaraflokks karla og leikmann U21 landsliðs Íslands, til loka tímabilsins 2026–2027. Sigurður Páll er þessa dagana með 21 árs landsliðinu á heimsmeistaramótinu í Póllandi.


„Ég er þakklátur fyrir traustið og spenntur fyrir áframhaldandi vegferð með Víkingi. Þetta er frábært umhverfi fyrir mig sem leikmann og markmiðið er skýrt – við ætlum okkur upp Olís-deildina,“ er haft eftir Sigurði Páli í tilkynningu Víkings.

„Sigurður hefur elju og þrautseigju sem á eftir að koma honum mjög langt í greininni. Hann býr yfir sterku hugarfari, góðum leikskilningi og samskiptahæfni sem gerir hann að náttúrulegum leiðtoga innan hópsins. Við erum stolt af því að halda honum áfram hjá félaginu,“ er haft eftir Aðalsteini Eyjólfssyni þjálfara Víkings og yfirmanni handknattleiksmála hjá félaginu.


Víkingur hafnaði í þriðja sæti Grill 66-deildar karla í og féll naumlega út eftir æsilegan oddaleik við Selfoss í undanúrslitum umspils Olísdeildar.

Sigurður Páll skoraði 69 mörk í 14 leikjum í Grill 66-deildinni.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -