- Auglýsing -

Sigurinn var tekinn af okkur – myndskeið

Einar Andri Einarsson annar þjálfari 21 árs landsliðsins í handknattleik karla. Mynd/IHF/Sasa Pahic Szabo / kolektiff
- Auglýsing -


„Ég ætla bara að leyfa mér að segja að sigurinn hafi verið tekinn af okkur,“ sagði Einar Andri Einarsson annar þjálfari U21 árs landsliðsins ómyrkur í máli þegar handbolti.is sló á þráðinn til hans eftir jafntefl við Færeyinga, 35:35, í annarri umferð F-riðils heimsmeistaramótsins í handknattleik í Katowice í Póllandi dag. Einar Andri er afar óánægður með dómgæsluna á síðustu sekúndum leiksins.

Dæma átti ruðning

„Færeyingurinn hljóp á Össur úti á miðjum velli. Það er ekkert í reglunum sem segir að þetta sé rautt spjald og vítakast eins og dómararnir dæmdu. Til þess að hægt sé að dæma vítakast og sýna rautt spjald þarf brotið að verðskulda það. Að mínu viti var um ruðning að ræða. Dómararnir frá Úrúgvæ sáu þetta öðrum augum,“ sagði Einar Andri sem alla jafna er var í orðum eftir kappleiki. Þess vegna er meira vægi í orðum hans nú.

Elmar fór á kostum – dramatískt jafntefli við Færeyinga


Hér má sjá samanklippt efni frá síðustu rúmu mínútu leiksins:

Var brotið á Birki Snæ?

„Niðurstaðan er mjög svekkjandi og mjög dýrt stig sem við misstum,“ sagði Einar Andri og bætti við að ekki hafi aðeins verið athugunarvert við síðasta dóm leiksins heldur sé einnig vafi á hvort íslenska landsliðið hafi ekki átt að fá aukakast í sinni síðustu sókn sem lauk átta sekúndum fyrir leikslok. Einar Andri sagði telja að brotið hafi verið á Birki Snæ Steinssyni þegar hann kastaði boltanum að marki Færeyinga en dómararnir voru á öðru máli og dæmdu ekkert.

Leika sinn handbolta

„Úrslitin eru mikið svekkelsi því við lögðum mikið í leikinn og vorum í miklum erfiðleikum með Færeyingana fyrstu 40 mínúturnar. Þeir leika nú sinn handbolta,“ sagði Einar Andri og vísaði í að Færeyingar leika nær eingöngu með sjö sóknarmenn, þar af tvo línumenn. Afar erfitt er að verjast í 60 mínútur gegn sjö manna sóknarleik, ekki síst með Óla Mittún í stöðugum árásum.

„Þeir eru vel samæfðir í þessum leik sínum. Þegar á leið tókum við Óla [Mittún] úr umferð og reyndum ýmislegt sem gekk vel og varð þess valdandi að við vorum komnir með tök á þeim í lokin,“ sagði Einar Andri.

Hægt er sjá lokasekúndur leiksins í upptöku hér fyrir neðan:

Streymi: Ísland – Færeyjar, kl. 9.45 – HM 21 árs

Sterkt að koma til baka

„Það var mikill karakter í stráknum að koma til baka eftir mikið svekkelsi með gærdaginn og leikinn við Rúmena,“ sagði Einar Andri ennfremur og vísað til fjögurra marka tapsins í fyrstu umferð, 29:25. Íslenska liðið fór með ógrynni góðra marktækifæra í þeim leik.

Hefur aldrei séð annað eins

„Ég hef bara ekki séð lið fara með annað eins af dauðafærum og í þeim leik. Spilamennskan var fín en auðvitað verða menn að nýta færi. Ef allt hefði verið eðlilegt þá áttum við að vinna þann leik,“ sagði Einar Andri Einarsson sem þjálfar 21 árs landsliðið með Halldóri Jóhanni Sigfússyni.

Eftir að Norður Makedónía tapaði fyrir Rúmeníu í dag, 28:27, er eina von íslenska liðsins um að komast áfram í sextán liða úrslit sú að vinna Norður Makedóníu og vonast eftir að Færeyingar tapi fyrir Rúmeníu.

Uppfært:

Sem dæmi: Tapi Færeyingar með einu marki fyrir Rúmeníu þarf íslenska liðið að vinna Norður Makedóníu með níu marka mun.

Íslenska landsliðið er með fjögur mörk í mínum eftir tvo leiki en Færeyingar með fimm mörk í plús.

Heildarmarkatala allra leikjanna ræður röðin í sæti verði tvö lið jöfn að stigum.

HM21-2025: riðlakeppni, úrslit og staðan

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -