Íslendingaliðið Blomberg-Lippe fór ekki erindisleysu til suðurhluta Þýskalands í kvöld til að sækja Sport-Union Neckarsulm heim í 15. umferð þýsku 1. deildarinnar í handknattleik. Leikmenn liðsins fóru með tvö stig í pokahorninu heim eftir tveggja marka sigur, 29:27, eftir að hafa verið þremur mörkum yfir í hálfleik, 16:13.
Blomberg-Lippe er þar með áfram í öðru sæti deildarinnar með 26 stig, jafnmörg og Borussia Dortmynd sem lagði SV Union Halle-Neustadt, 39:29, á útivelli. Dortmund á leik til góða á Blomberg-Lippe.
Létu til sín taka
Landsliðskvennatríóið lét til sín taka að vanda. Andrea Jacobsen skoraði 2 mörk, átti 2 stoðsendingar og fiskaði eitt vítakast.
Díana Dögg Magnúsdóttir skoraði 4 mörk, gaf 3 stoðsendingar, skapaði 1 færi, vann 1 vítakast og vann andstæðing einu sinni af leikvelli.
Elín Rósa Magnúsdóttir skoraði 1 mark, átti 2 stoðsendingar, vann 4 vítaköst og lék einn andstæðing svo grátt að varnarmaðurinn sá ekki annan kost í stöðunni en að stöðva Elínu Rósu á ólöglegan hátt og var vikið af leikvelli fyrir vikið.
Úrslit kvöldsins:
SV Union Halle-Neustadt – Dortmund 29:39 (17:22).
Buxtehuder – Oldenburg 35:31 (15:16).
Sport-Union Neckarsulm – Blomberg-Lippe 27:29 (13:16).
Thüringer – Göppingen 39:22 (22:15).
Staðan í þýsku 1. deildinni:



