Kolstad og Elverum mætast í úrslitum norsku bikarkeppninnar í karlaflokki eftir að hafa unnið leiki sína í undanúrslitum í dag. Kolstad, sem unnið hefur bikarinn tvö undangengin tímabil, lagði Drammen, 33:29, í Drammen. Elverum var hinsvegar í krappari dansi á móti ØIF Arendal en tókst að vinna í framlengingu, 37:33. Elverum skoraði tvö síðustu mörkin í venjulegum leiktíma í Sør Amfi í Arendal og tryggði sér þar með framlengingu.
Dagur Gautason skoraði fjögur mörk í fimm skotum fyrir Arendal-liðið.
Sigvaldi Björn Guðjónsson fyrirliði Kolstad skoraði sex mörk fyrir Kolstad í sigrinum í Drammen og var markahæstur ásamt Magnus Søndenå. Benedikt Gunnar Óskarsson og Sveinn Jóhannsson skoruðu ekki fyrir Kolstad.
Viktor Petersen Norberg skoraði eitt mark og átti tvær stoðsendingar í liði Drammen sem var marki yfir þegar fyrri hálfleikur var að baki, 16:15.
Ísak Steinsson náði sér ekki á strik í marki Drammen-liðsins að þessu sinni. Hann varði tvö skot á þeim tíma sem hann stóð á milli stanganna, 18%.
Úrslitaleikur Kolstad og Elverum fer fram á milli jóla og nýárs.