- Auglýsing -
Sjö ungar handknattleikskonur hafa skrifað undir tveggja ára samninga við handknattleiksdeild HK. Allar hafa þær leikið upp yngri flokka Kópavogsliðsins og áttu sæti í 3. flokksliðinu sem varð Íslandsmeistari í vor eftir hörkuleik við Hauka í úrslitum, 31:25.
Sjömenningarnir eru Amelía Laufey Miljevic, Anna Valdís Garðarsdóttir, Ethel Gyða Bjarnasen, Margrét Guðmundsdóttir, Hekla Fönn Vilhelmsdóttir, Leandra Náttsól Salvamoser og Katrín Hekla Magnúsdóttir.
Ethel Gyða sló í gegn á heimsmeistaramóti 18 ára landsliða í ágúst með íslenska landsliðinu sem hafnaði í áttunda sæti.
Reiknað er með að stúlkurnar hafi í mörg horn að líta með liðum HK í ýmsum flokkum á keppnistímabilinu sem er að hefjast um þessar mundir.
Nánar er sagt frá stúlkunum í tilkynningu á heimasíðu HK.
handbolti.is nýtur ekki opinbers rekstrarstuðnings.
- Auglýsing -