„Eftir krefjandi byrjun þá er maður kominn á fulla ferð. Ég reyni bara að nýta hvert tækifæri sem gefst sem best til þess að bæta mig,“ segir Reynir Þór Stefánsson leikmaður sem hefur verið í vaxandi hlutverki hjá þýska liðinu MT Melsungen á leiktíðinni. Reynir Þór gekk til liðs við félagið síðasta sumar en veiktist eins og áður var rakið. Veikindin töfðu verulega fyrir að hann gæti byrjað að æfa af krafti og leika með þýska liðinu. Síðan í lok nóvember hefur Reynir Þór verið í vaxandi hlutverki hjá Melsungen og líkar vel.
Var kippt úr sambandi – Reynir Þór á réttri leið eftir gollurshússbólgu
Allt annað líf
„Þetta er bara allt annað líf eftir að ég náði mér á fullu og mátti byrja að leika. Tíminn líður hraðar og lífið er mikið skemmtilegra,“ segir Reynir Þór glaður í bragði við handbolta.is.
Reynir Þór segir mikla breytingu felast í því að skipta úr Olísdeildinni og yfir í þýsku 1. deildina. „Þetta er allt stærra og meira ytra en bara gaman. Að þessu hefur maður stefnt og þá er bara að taka þátt í draumnum,“ segir Reynir Þór sem varð Íslands- og bikarmeistari með Fram fyrir ári. Í lok leiktíðar var hann valinn besti leikmaður Olísdeildarinnar og síðan íþróttamaður Fram fyrir síðasta ár.

Nóg að gera
Reynir segir leikjadagskrána hafa verið mjög stöðuga eftir að Evrópumóti landsliða lauk. „Það hafa verið tveir leikir á viku hið minnsta, Evrópudeildin á hverjum þriðjudegi og síðan leikir í þýsku deildinni þess á milli auk tilheyrandi ferðalaga. Tveir til þrír leikir á viku. Þar af leiðandi hefur verið minni tími til æfinga en auðvitað er æft í hvert sinn sem tækifæri gefst,“ segir Reynir Þór sem kvíðir ekki áframhaldandi leikjaálagi fram í byrjun júní.
„Þetta er bara geggjað. Það skemmtilegasta sem maður gerir er að spila handbolta,“ segir Reynir Þór.
Í skyttu og á miðju
Reynir Þór leikur jöfnum höndum á miðjunni og í vinstri skyttunni með MT Melsungen. Í vörn hefur hans hlutverk aðallega verið í bakverðinum eða í horni, allt eftir leikskipulagi hverju sinni. „Maður er bara að feta sig áfram og njóta þess að gera það sem mann langar helst að gera,“ segir Reynir Þór.
Mættur í landsliðið á ný
Nærri ár er liðið síðan Reynir Þór lék sinn fyrsta A-landsleik. Var það gegn Georgíumönnum í Laugardalshöll í undankeppni EM. Nú er hann mættur til leiks aftur með landsliðinu og er þess albúinn að nýta tækifærið ef það býðst í viðureignum við Svía síðar í þessari viku.
„Maður stefnir alltaf á að spila með landsliðinu og nýta þau tækifæri sem gefast. Það er líka gott að koma heim auk þess að fá möguleika á að leika gegn heimsklassaliðinu eins og Svíar hafa á að skipa. Þetta er mjög spennandi,“ segir Reynir Þór Stefánsson landsliðsmaður í handknattleik.
Miðar til á fyrri leikinn
Uppselt er á landsleikinn í Kaplakrika en enn eru óseldir aðgöngumiðar á viðureignina í N1-höllinni á Hlíðarenda á fimmtudagskvöld klukkan 19.30.
Miðasala á landsleikinn á fimmtudaginn.




