- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -

Skrifað undir nýjan samning við Önnu Láru

Anna Lára Davíðsdóttir í leik með Stjörnunni. Ljósmynd/Stjarnan
- Auglýsing -


Anna Lára Davíðsdóttir hefur framlengt samning sinn við
handknattleiksdeild Stjörnunnar. Anna Lára kom til Stjörnunnar sem lánsmaður frá Haukum leiktíðina 2022/2023 og líkaði veran vel og skrifaði undir tveggja ára samning við Garðabæjarliðið 2023 sem nú hefur verið framlengdur. Anna Lára hefur einnig leikið með Gróttu sem er hennar uppeldisfélag.


„Mjög ánægður að Anna Lára verði áfram með okkur, fjölhæfur leikmaður sem getur spilað margar stöður fyrir utan. Hennar kraftur, orka og jákvæðni skiptir máli fyrir okkar lið og hlakka ég til að vinna áfram með henni,” segir Patrekur Jóhannesson þjálfari Stjörnunnar í tilkynningu félagsins.

Systir Önnu Láru, Eva Björk, hefur verið ein burðarása Stjörnuliðsins undanfarin ár.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -