- Auglýsing -

Sleipt keppnisgólf er ráðgáta – ástandið var óvenju slæmt og ólíðandi

Keppnisgólfið í Lanxess Arena þótti óviðundandi í gær en stemningin var góð meðal 20 þúsund áhorfenda. Ljósmynd/EPA
- Auglýsing -


Mikil umræða skapaðist strax í gær vegna keppnisgólfsins í Lanxess Arena í Köln þar sem leikið er til úrslita í Meistaradeild Evrópu í handknattleik. Gólfið þótti einstaklega sleipt og urðu leikmenn varir við það strax í upphitun fyrir fyrstu viðureignina. Tveir leikmenn, Mathias Gidsel hjá Füchse Berlin og Aitor Ariño Bengoechea, fengu rauða spjaldið eftir að þeir runnu á hálu gólfinu og í veg fyrir hornamenn sem voru á leið að marki.

Margir leikmenn runnu til og var mildi að ekki urðu stórslys.


Hugsanlegt er talið að hnémeiðsli Barcelonamannsins Dika Mem megi rekja til ástand gólfsins en Mem hefur fyrr á leiktíðinni verið frá vegna hnémeiðsla og er fyrir vikið viðkvæmari en ella.

Takturinn tapaðist

Vegna þess hversu sleipt gólfið var tóku leikirnir tveir í gær lengri tíma en ella. Leikirnir voru stöðvaðir reglulega og fólk stormaði inn með þvegla. Þetta tók taktinn úr leikjunum að margra mati en á móti kom að það var algjörlega nauðsynlegt að sporna við gólfrakanum.

Segir ástandið vera skandal

Bent Nyegaard handboltasérfræðingur TV2, sem er í Köln, segir ástandið vera skandal sem skrifist á reikning Handknattleikssambands Evrópu. Ekki eigi að þekkjast að leikmenn fái rauð spjöld vegna þess að keppnisgólfið er óviðunandi. Fleiri hafa tekið undir með Dananum sem marga fjöruna hefur sopið.

Stefan Kretzschmar starfsmaður Füchse Berlin segir að dómarar hafi sagt við sig að gólfið í keppnishöllinni væri óvenju sleipt og verra en áður.

Ekki er um nýtt gólfefni að ræða sem síður en svo er notað í fyrsta sinn í Lanxess Arena.

Hulin ráðgáta

Mörgum er hulin ráðgáta af hverju ástandið er verra nú en stundum áður. Einhverjir vilja rekja ástandið til eldspúandi olíulukta sem notaðar eru fyrir leikina þegar liðin eru kynnt til sögunnar og eru látin ganga í kringum skemmtiatriði.

Eldspúandi olíuluktir liggja undir grun að eiga sinn þátt í óvenjuhálu keppnisgólfi Lanxess Arena í Köln í gær. Ljósmynd/EPA

Einnig er ljóst að mikill raki fylgir bæði leikmönnum, 20 þúsund áhorfendum í þeim mikla hita sem verið hefur í Köln síðustu daga. Hitinn hefur verið á bilinu 30 til 33 gráður. Til að bæta gráu ofan á svart þá gerði steypiregn á milli leikjanna í gær sem bætti enn á rakann utandyra sem barst inn. Rigningin er þó ekki afsökun ástandi gólfsins í fyrri viðureigninni á milli Füchse Berlin og Nantes.

Skúringavélar ræstar

Víst er að forráðamenn EHF og ræstingafólk hefur legið yfir gólfinu í gærkvöld og í nótt við þrif og rannsóknir hvað olli óvenju slæmu ástandi í gær. Strax eftir síðari undanúrslitaleikinn í gærkvöld voru starfsmenn mættir með fjölda skúringavéla til að þrifa gólfið af enn meiri nákvæmni en venjulega.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -