-Auglýsing-

Stjarnan bjargaði sér fyrir horn og Selfoss féll

- Auglýsing -

Stjarnan forðaði sér frá falli úr Olísdeild kvenna, að minnsta kosti um sinn, á dramatískan hátt er liðið gerði jafntefli við Hauka, 26:26, í lokaumferð deildarinnar í Kuehne+Nagel höllinni á Ásvöllum í dag. Á sama tíma steinlá Selfoss fyrir ÍR, 33:20, í Skógarseli og féll niður í Grill 66 deildina.

Færeyingurinn Inga Maria Roysdóttir jafnaði metin fyrir Stjörnuna fjórum sekúndum fyrir leikslok og tryggði liðinu þannig sæti í umspili ásamt þremur liðum úr Grill 66 deildinni.


Endurkoma Stjörnunnar var ekki síst mögnuð þar sem Haukar náðu mest sjö marka forystu, 17:10, undir lok fyrri hálfleiks og voru sex mörkum yfir, 17:11, að honum loknum.

Tvö jafntefli í síðustu tveimur umferðunum

Stjarnan hafnar í sjöunda sæti með sjö stig eftir að hafa gert jafntefli í síðustu tveimur umferðunum en Selfoss hafnar í áttunda og neðsta sæti með sex stig. Selfoss fer þannig niður um deild eftir tveggja ára veru á meðal þeirra bestu.

Haukar hafna í þriðja sæti og ÍR í fjórða sæti. Haukar mæta KA/Þór og ÍR mætir Fram í fyrstu umferð úrslitakeppninnar um Íslandsmeistaratitilinn um næstu helgi.


Stjarnan mætir annað hvort FH eða Víkingi Reykjavík í umspilinu en það kemst á hreint á morgun þegar lokaumferð Grill 66 deildarinnar fer fram. Umspilið hefst 29. mars.

Haukar – Stjarnan 26:26 (17:11).

Mörk Hauka: Jóhanna Margrét Sigurðardóttir 7, Rakel Oddný Guðmundsdóttir 5, Sonja Lind Sigsteinsdóttir 5, Birta Lind Jóhannsdóttir 3, Inga Dís Jóhannsdóttir 2, Sara Odden 1, Embla Steindórsdóttir 1, Aníta Eik Jónsdóttir 1, Alexandra Líf Arnarsdóttir 1.
Varin skot: Sara Sif Helgadóttir 13.

Mörk Stjörnunnar: Natasja Hammer 9, Sara Katrín Gunnarsdóttir 5/3, Eva Björk Davíðsdóttir 4, Inga Maria Roysdóttir 4, Guðmunda Auður Guðjónsdóttir 2, Rakel Guðjónsdóttir 1, Hanna Guðrún Hauksdóttir 1
Varin skot: Margrét Einarsdóttir 13.

ÍR – Selfoss 33:20 (21:11).

Mörk ÍR: Sara Dögg Hjaltadóttir 10/4, Anna María Aðalsteinsdóttir 7, Matthildur Lilja Jónsdóttir 5, María Leifsdóttir 2, Sigrún Ása Ásgrímsdóttir 2, Ásthildur Bertha Bjarkadóttir 2, Karen Tinna Demian 2, Erla María Magnúsdóttir 1, Dagbjört Ýr Ólafsdóttir 1, Solveig Lára Kjærnested 1.
Varin skot: Hildur Öder Einarsdóttir 15, 43% markvarsla.

Mörk Selfoss: Marte Syverud 4/1, Adela Eyrún Jóhannsdóttir 3, Hulda Dís Þrastardóttir 2/1, Katla Björg Ómarsdóttir 2, Inga Dís Axelsdóttir 2, Eva Lind Tyrfingsdóttir 2, Hulda Hrönn Bragadóttir 2, Perla Ruth Albertsdóttir 1.
Varin skot: Selma Þóra Jóhannsdóttir 5, Sara Xiao Reykdal 3.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -