- Auglýsing -

Sú markahæsta framlengir til tveggja ára

Sólveig Ása Brynjarsdóttir hefur skrifað undir tveggja ára samning við Fjölni. Ljósmynd/Fjölnir
- Auglýsing -


Sólveig Ása Brynjarsdóttir, markahæsti leikmaður Fjölnis á síðustu leiktíð, hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við félagið. Mikill hugur er í Fjölnisfólki fyrir næstu leiktíð. Endurnýjaðir hafa verið samningar við leikmenn liðsins auk þess sem liðsauki hefur borist m.a. með komu Berglindar Benediktsdóttur, Signýjar Pálu Pálsdóttur og Stefaníu Óskar Engilbertsdóttur.


Sólveig Ása skoraði 85 mörk fyrir Fjölni á síðasta keppnistímabili Íslandsmótsins.

Fjölnir lék í Grill 66-deild kvenna á síðustu leiktíð og verður áfram í deildinni á næstu leiktíð þegar flautað verður til leiks í september.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -