- Auglýsing -

Svavar og Sigurður dæma í Malmö – eftirlitsmenn til Danmerkur og Noregs

- Auglýsing -


Handknattleiksdómararnir Svavar Ólafur Pétursson og Sigurður Hjörtur Þrastarson dæma fyrri viðureign sænsku liðanna HK Malmö og IK Sävehof í forkeppni Evrópudeildar karla í handknattleik. Þetta verður fyrsti leikur þeirra félaga í Evrópu á keppnistímabilinu en þeir dæmdu marga leiki á síðustu leiktíð, bæði í Evrópudeildinni og eins landsleiki í undankeppni EM 2026.


Leikurinn sem Svavar og Sigurður dæma fer fram í Malmö sunnudaginn 31. ágúst. Liðin mætast öðru sinni í Partille viku síðar. Sigurliðið tekur sæti í riðaleppni Evrópudeildarinnar sem fer af stað í október.

Birgir Steinn Jónsson verður væntanlega í eldlínunni með IK Sävehof en hann gekk til liðs við félagið í sumar frá Aftureldingu.

Auk Sigurðar og Svavars verða tveir íslenskir eftirlitsmenn við störf þessa helgi, 30. og 31. ágúst.

Hlynur til Jótlands

Hlynur Leifsson verður eftirlitsmaður EHF á viðureign Skanderborg AGF Maritimo da Madeira sem fram fer í Aarhus 30. ágúst í fyrri umferð forkeppni Evrópudeildarinnar. Hlynur verður ekki eini Íslendingurinn sem tekur þátt í leiknum vegna þess að landsliðsmaðurinn Kristján Örn Kristjánsson, Donni, leikur með Skanderborg AGF.

Kristján fer til Noregs

Daginn eftir, 31. ágúst verður Kristján Halldórsson eftirlitsmaður á viðureign Elverum og Bathco Bm Torrelavega frá Spáni sem leikinn verður í Terningen Arena í Elverum. Tryggvi Þórisson gekk til liðs við Elverum í sumar og verður að öllu óbreyttu í leikmannahópi liðsins.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -