Tomas Svensson, fyrrverandi markvarðaþjálfari íslenska landsliðsins, er nú orðaður við starf markvarðaþjálfara hjá Barcelona. Spænska sjónvarpsstöðin Onze greindi frá þessu í gær samkvæmt heimildum.
Svensson, sem er einn allra besti handknattleiksmarkvörður sögunnar, lék með Barcelona frá 1995 til 2002 og átti lengi heimili eftir það í Katalóníu.
💥 CANVIS A L’HANDBOL
— Onze (@OnzeTv3) March 30, 2021
🎙️ @OriolDomenech:
🔊 “Torna Tomas Svensson, el porter del Dream Team, per ser entrenador de porters del primer equip”
🔊 “Xavier O’Callaghan podria ser el relleu d’Albert Soler com a màxim executiu de totes les seccions”#OnzeE3 pic.twitter.com/kSEoekqi9z
Svensson hefur síðustu ár verið markvarðaþjálfari SC Magdeburg en með lausan samning í vor eftir því sem þýskir fjölmiðlar greindu frá á dögunum þegar hann var orðaður við starf aðstoðarþjálfara Hannover-Burgdorf.
Samhliða starfi sínu hjá Magdeburg þá var hann markvarðarþjálfari danska landsliðsins meðan Guðmundur Þórður Guðmundsson þjálfaði danska landsliðið. Svensson kom inn í þjálfarateymi íslenska landsliðsins með Guðmundi Þórði snemma árs 2018. Svíinn sagði starfi sínu lausu eftir HM í Egyptalandi og tók þá við þjálfun markvarða sænska karlalandsliðsins sem hann sinnir nú með starfi sínu hjá Magdeburg.