Alfreð Gíslason landsliðsþjálfari Þýskalands í handknattliek karla verður án markvarðarins sterka, Andreas Wolff, örvhentu skyttunnar Franz Semper og línumannsins Johannes Golla í síðasta leiknum í undankeppni EM á morgun. Þjóðverjar mæta Tyrkjum sem er neðstir í riðlinum. Þýska liðið...
Anders Eggert hefur tekið við þjálfun danska handknattleiksliðsins KIF Kolding. Hann á að leiða endurreisn þessa fornfræga liðs sem féll úr úrvalsdeildinni í vor. Eggert hefur undanfarin tvö ár verið aðstoðarþjálfari Flensburg-Handewitt. Eggert er 42 ára gamall og var...
Ómar Ingi Magnússon leikur sinn 90. landsleik í Laugardalshöllinni á sunnudaginn þegar íslenska landsliðið mætir georgíska landsliðinu í sjöttu og síðustu umferð undankeppni EM 2026. Leikurinn hefst klukkan 16.
Ómar Ingi lék í gær sinn fyrsta landsleik síðan í Tiblisi...
Arnór Atlason þjálfari hjá danska úrvalsdeildarliðinu TTH Holstebro hefur samið við norska handknattleiksmanninn Eskil Dahl Reitan frá Bergen. Reitan 24 ára gamall og getur leikið í skyttustöðunni hægra og vinstra megin auk þess að vera miðjumaður. Reitan er sagður...
Kristján Örn Kristjánsson, Donni, skoraði tvö mörk í átta skotum og gaf eina stoðsendinginu í átta marka tapi Skanderborg AGF í heimsókn til Skjern, 35:27, í þriðju umferð úrslitakeppni átta efstu liða dönsku úrvalsdeildarinnar í gærkvöld.
Skanderborg AGF rekur lestina...
Orri Freyr Þorkelsson var næst markahæstur hjá Sporting í átta marka sigri liðsins á Benfica, 37:29, í uppgjöri Lissabon-liðanna í fjórðu umferð úrslitakeppni fjögurra efstu liða portúgölsku 1. deildarinnar í gær. Orri Freyr skoraði átta mörk. Salvador Salvador skoraði...
Eftir ársfjarveru frá handboltavellinum þá sneri Eyjamaðurinn Hákon Daði Styrmisson út á völlinn í gærkvöld með liði sínu, Eintracht Hagen, þegar það sótti Ludwigshafen heim í þýsku 2. deildinni í handknattleik. Hákon Daði skoraði tvö mörk í tveggja marka...
Hollenska handknattleikskonan Laura van der Heijden hefur ákveðið að leggja keppnisskóna á hilluna en hún verður 35 ára gömul í næsta mánuði. Van der Heijden hefur síðustu 15 ár leikið með mörgum fremstu handknattleiksliðum Evrópu. Hún hefur leikið ríflega...
Þýska handknattleiksliðið HSV Hamburg hefur fengið keppnisleyfi fyrir næsta keppnistímabil. Félagið var það eina í efstu deild sem fékk ekki útgefið keppnisleyfi um miðjan apríl nema að ákveðnum skilyrðum uppfylltum. Fengu forráðamenn félagsins frest til 5. maí til þess...
Spænska ungstirnið Petar Cikusa hefur framlengt samningi sínum við Barcelona til ársins 2029. Cikusa hefur leikið talsvert með Barcelona á leiktíðinni og einnig verið í spænska landsliðinu þrátt fyrir að vera aðeins tvítugur. Hann var frábær á EM 20...