- Auglýsing -
- Þýska handknattleiksliðið HSV Hamburg hefur fengið keppnisleyfi fyrir næsta keppnistímabil. Félagið var það eina í efstu deild sem fékk ekki útgefið keppnisleyfi um miðjan apríl nema að ákveðnum skilyrðum uppfylltum. Fengu forráðamenn félagsins frest til 5. maí til þess að uppfylla skilyrðin sem aðallega sneru að fjárhagslegum skuldbindingum en félagið er talsvert skuldugt. Í gær tilkynnti leyfisnefnd þýsku deildarkeppninnar að HSV Hamburg hafi uppfyllt skilyrðin sem félaginu voru sett.
- HSV Hamburg hefur þar með gilt keppnisleyfi fyrir næsta tímabil. Einar Þorsteinn Ólafsson landsliðsmaður gengur til liðs við HSV Hamburg í sumar.
- Í sumar verða gerðar endurbætur á Middelfart Sparekasse Arena, heimavelli Fredericia HK sem Guðmundur Þórður Guðmundsson þjálfar. Breytingarnar fela m.a. í sér að 144 sætum verður bætt við og veitir ekki af enda áhugi fyrir liðinu stórlega aukist vegna framúrskarandi árangurs síðustu árin undir stjórn Guðmundar.
- Melsungen, sem landsliðsmennirnir Arnar Freyr Arnarsson og Elvar Örn Jónsson leika með, mætir Flensburg í undanúrslitum Evrópudeildarinnar í handknattleik 24. maí í Hamborg. Dregið var í gær.
- Í hinni viðureign undanúrslita eigast við THW Kiel og Montpellier frá Frakklandi. Dagur Gautason leikur með Montpellier. Sigurliðin mætast í úrslitaleik daginn eftir.
- Sænski handknattleiksmaðurinn Jonathan Svensson yfirgefur Melsungen í sumar og og gengur til liðs við nýliða dönsku úrvalsdeildarinnar, HØJ Elite, sem safnað hafa að sér öflugum leikmönnum síðustu mánuði. Má þar m.a. nefna annan sænska landsliðsmann, Hampus Wanne.
- Þekktasti danski leikmaður HØJ Elite er Hans Lindberg. Hann gekk til liðs við félagið síðasta sumar. HØJ Elite, sem er með bækistöðvar á Sjálandi, hefur þegar unnið næst efstu deild danska handknattleiksins og ætlar sér talsverða hluti í úrvalsdeildinni á næstu leiktíð.
- Annar sænskur handknattleiksmaður, Gustav Davidsson, heldur heim í sumar eftir tveggja ára veru hjá Rhein-Neckar Löwen. Davidsson tekur upp þráðinn með Hammarby hvar hann lék í fjögur ár fyrir flutninginn til Þýskalands sumarið 2023
Vinsælt lesefni:
- Auglýsing -