Íslenska landsliðið í handknattleik karla, skipað leikmönnum 21 árs og yngri, tapaði fyrstu viðureign sinni á heimsmeistaramótinu í Póllandi í morgun þegar liðið mætti Rúmeníu. Lokatölur 29:25 Rúmenum í hag í Katowice. Staðan í hálfleik var 15:12.
Næsti leikur íslenska landsliðsins á mótinu verður við færeyska landsliðið í fyrramálið og hefst klukkan 9.45. Færeyingar mæta Norður Makedóníumönnum í hádeginu í dag.
Íslenska liðið byrjaði leikinn af krafti og skoraði fjögur af fimm fyrstu mörkum leiksins. Þá vöknuðu Rúmenar. Þeir jöfnuðu metin, 4:4, og komust yfir, 5:6. Upp úr miðjum síðari hálfleik komst rúmenska liðið tveimur mörkum yfir og leit aldrei um öxl eftir það.
Af þeim takmörkuðu upplýsingum sem fengust af leiknum virtist sóknarleikurinn hafa brugðist íslenska liðinu.
Rúmenar voru með örugga forystu allan síðari hálfleikinn, mest sex mörk en minnstur var munurinn tvö mörk, 15:13.
Þetta var fyrsti leikur Rúmena í lokakeppni HM 21 árs landsliða í 10 ár.
Maður leiksins var valinn Marian Sirghie markvörður.




Mörk Íslands: Birkir Snær Steinsson 5, Elmar Erlingsson 4, Össur Haraldsson 4, Þorvaldur Örn Þorvaldsson 4, Skarphéðinn Ívar Einarsson 3, Hinrik Hugi Heiðarsson 2, Sigurður Páll Matthíasson 2, Andri Fannar Elísson 1.
Varin skot: Ísak Steinsson 8, 28% – Breki Hrafn Árnason 6, 43%.
Mörk Rúmeníu: Daniel Stanciuc 11, Codrin Radu 6, Andrei Oancea 4, Aleandru Focsaneanu 3, Stefa Armanu 2, Paul Grigore 2, Cordin Dascalu 1.
Varin skot: Marian Sirghie 15, 38%.
HM21-2025: riðlakeppni, úrslit og staðan
Handbolti.is reyndi að fylgjast með leiknum í textalýsingu hér fyrir neðan.