- Auglýsing -
Handbolti.is hefur tekið saman helstu breytingar sem hafa orðið eða verða á högum íslenskra handknattleiksþjálfara, jafnt utan lands sem innan fyrir næsta keppnistímabil, 2025/2026.
Skráin verður reglulega uppfærð.
Athugasemdir eða ábendingar: [email protected]
- Elías Már Halldórsson hættir þjálfun Fredrikstad Bkl og tekur við þjálfun Ryger HK.
- Óskar Bjarni Óskarsson hættir þjálfun karlaliðs Vals.
- Ágúst Þór Jóhannsson hættir þjálfun kvennaliðs Vals og tekur við karlaliði félagsins.
- Anton Rúnarsson tekur við þjálfun kvennaliðs Vals.
- Aron Kristjánsson tekur við þjálfun landsliðs Kúveit.
- Róbert Gunnarsson hættir þjálfun karlaliðs Gróttu og kemur inn í þjálfarateymi karlaliðs Vals.
- Sigurður Bragason hættir þjálfun kvennaliðs ÍBV.
- Magnús Stefánsson tekur við þjálfun kvennaliðs ÍBV.
- Davíð Örn Hlöðversson tekur við þjálfun karlaliðs Gróttu.
- Erlingur Richardsson tekur við þjálfun karlaliðs ÍBV.
- Ásgeir Örn Hallgrímsson hættir þjálfun Hauka.
- Gunnar Magnússon hættir þjálfun karlaliðs Aftureldingar og tekur við þjálfun karlaliðs Hauka.
- Stefán Árnason tekur við þjálfun karlaliðs Aftureldingar.
- Halldór Örn Tryggvason hættir þjálfun Þórs.
- Halldór Stefán Haraldsson hættir þjálfun karlaliðs KA.
- Roland Eradze hættir hjá ÍBV og verður markavarðaþjálfari Fram.
- Rakel Dögg Bragadóttir hættir þjálfun kvennaliðs Fram.
- Haraldur Þorvarðarson tekur við þjálfun kvennaliðs Fram.
- Sólveig Lára Kjærnested hættir þjálfun kvennaliðs ÍR.
- Bjarni Gunnar Bjarnason verður aðstoðarþjálfari karlaliðs Hauka.
- Jóhann Ingi Guðmundsson verður markvarðaþjálfari karlaliða Vals.
- Róbert Árni Guðmundsson kemur inn í þjálfarateymi meistaraflokks ÍR og 3.flokks.
- Grétar Áki Andersen tekur við þjálfun kvennaliðs ÍR.
- Daníel Berg Grétarsson verður aðstoðarþjálfari karlaliðs Aftureldingar.
- Sigurgeir Jónsson verður í þjálfarateymi kvennaliðs Vals.
- Daniel Birkelund verður þjálfari karlaliðs Þórs.
Konur – helstu félagaskipti 2025
Karlar – helstu félagaskipti 2025
Þjálfarar – helstu breytingar 2024
- Auglýsing -