Þorsteinn Gauti Hjálmarsson, leikmaður Fram, hefur neyðst til þess að draga sig úr finnska landsliðshópnum vegna ökklameiðsla sem hann hefur glímt við undanfarinn rúman mánuð.
Finnland á fyrir höndum tvo mikilvæga leiki gegn Svartfjallalandi í forkeppni HM 2027, þann fyrri á heimavelli á morgun. Sigurvegari einvígisins mætir Slóveníu í umspili um sæti á heimsmeistaramótinu.
Í tilkynningu á Facebook-síðu handknattleikssambands Finnlands er greint frá því að Ola Lindgren landsliðsþjálfari hafi neyðst til þess að gera fjölda breytinga á leikmannahópi sínum fyrir leikina tvo gegn Svartfjallalandi.
Þorsteinn Gauti er einn af fjórum leikmönnum sem hafa þurft að draga sig úr leikmannahópnum og hefur Lindgren kallað inn fimm leikmenn í þeirra stað.




