Þrír íslenskir landsliðsmenn eru á meðal þeirra sem valið stendur á milli í kjöri á úrvalsliði keppnistímabilsins sem Handknattleikssamband Evrópu, EHF, stendur fyrir. Þetta eru Gísli Þorgeir Kristjánsson, SC Magdeburg, Orri Freyr Þorkelsson, Sporting Lissabon, og Ómar Ingi Magnússon.
EHF hefur varið sex leikmenn í hverja stöðu á leikvellinum úr liðum sem tóku þátt í Meistaradeild Evrópu og Evrópudeildinni, alls 48 leikmenn.
Almenningur getur tekið þátt í kjörinu fram til 23. júní á appi EHF, Home of Handball. Atkvæði almennings vegur 25% á móti atkvæðum handknattleiksmanna, þjálfara og útvalins hóps fjölmiðlamanna, þar á meðal er handbolti.is.
Niðurstaða kjörsins liggur verður kynnt 27. júní ásamt vali á úrvalsliði kvenna sem er lokið. Sama dag verður dregið í riðla Meistaradeilda karla og kvenna fyrir næsta keppnistímabil.
Leikmennirnir sem valið stendur á milli eru:

Vinstra horn:
Emil Jakobsen (Danmörk, SG Flensburg).
Orri Freyr Þorkelsson (Ísland, Sporting CP).
Tim Freihöfer (Þýskal., Füchse Berlin).
Ian Barrufet (Spánn, MT Melsungen).
Matthias Musche (Þýskal., SC Magdeburg).
Valero Rivera (Spánn, HBC Nantes).
Vinstri skyttur:
Lasse Andersson (Danmörk, Füchse Berlin).
Thibaud Briet (Frakkl., HBC Nantes).
Martim Costa (Portúgal, Sporting CP).
Elohim Prandi (Frakkl., PSG).
Simon Jeppsson (Svíþjóð, Kolstad Håndbold).
Felix Claar (Svíþjóð, SC Magdeburg).

Miðjumenn:
Aymeric Minne (Frakkl., HBC Nantes).
Luc Steins (Holland, Paris Saint-Germain Handball).
Gisli Þorgeir Kristjánsson (Ísland, SC Magdeburg).
Nedim Remili (Frakkl., One Veszprém HC).
Thomas Arnoldsen (Danmörk, Aalborg Håndbold).
Nils Lichtlein (Þýskal., Füchse Berlin).
Hægri skyttur:
Francisco Costa (Portúgal, Sporting CP).
Mathias Gidsel (Danmörk, Füchse Berlin).
Julien Bos (Frakkl., HBC Nantes).
Albin Lagergren (Svíþjóð, SC Magdeburg).
Ómar Ingi Magnússon (Ísland, SC Magdeburg).
Dika Mem (Frakkl., Barcelona).

Hægra horn:
Mario Sostaric (Króatía, PICK Szeged).
Blaz Janc (Slóvenía, Barcelona).
Aleix Gómez (Spánn, Barcelona).
Sebastian Karlsson (Svíþjóð, Montpellier HB).
Bence Imre (Ungverjal., THW Kiel).
Filip Glavaš (Króatía, RK Zagreb).
Línumenn:
Mijajlo Marsenic (Serbía, Füchse Berlin).
Nicolas Tournat (Frakkl., HBC Nantes).
Marin Šipic (Króatía, HC Kriens-Luzern).
Ludovic Fabregas (Frakkl., One Veszprém HC).
Kamil Syprzak (Pólland, PSG).
Magnus Saugstrup (Danmörk, SC Magdeburg).
Markverðir:
Dominik Kuzmanovic (Króatía, VfL Gummersbach).
Emil Nielsen (Danmörk, Barcelona).
Andreas Wolff (Þýskal., THW Kiel).
Sergey Hernandez (Spánn, SC Magdeburg).
Kevin Møller (Danmörk, SG Flensburg).
Ivan Pesic (Króatía, HBC Nantes).
Varnarmenn:
Dragan Pechmalbec (Serbía, One Veszprém HC).
Karl Konan (Frakkl., Montpellier HB).
Magnus Saugstrup (Danmörk, SC Magdeburg).
Max Darj (Svíþjóð, Füchse Berlin).
Blaz Blagotinsek (Slóvenía, SG Flensburg).
Thibaud Briet (Frakkl., HBC Nantes).