Snorri Steinn Guðjónsson landsliðsþjálfari í handknattleik karla gerir þrjár breytingar á landsliðinu sem mætir Georgíu í Laugardalshöll í dag frá viðureigninni við Bosníu í Sarajevo á miðvikudaginn. Leikurinn Íslands og Georgíu hefst klukkan 16 í Laugardalhöll.
Framarinn Reynir Þór Stefánsson leikur sinn fyrsta A-landsleik. Auk hans bætast Andri Már Rúnarsson, Leipzig, og Ísak Steinsson markvörður Drammen í hópinn.
Björgvin Páll Gústavsson, markvörður Vals, Gísli Þorgeir Kristjánsson, Magdeburg, og Haukur Þrastarson, Dinamo Búkarest, falla út í stað þeirra þriggja sem koma inn í hópinn.
Markverðir:
Ísak Steinsson, Drammen HK (2/0).
Viktor Gísli Hallgrímsson, Wisla Plock (70/2).
Aðrir leikmenn:
Andri Már Rúnarsson, Leipzig (4/12).
Arnar Freyr Arnarsson, MT Melsungen (103/105).
Bjarki Már Elísson, One Veszprém (126/425).
Einar Þorsteinn Ólafsson, Fredericia HK (23/7).
Elvar Örn Jónsson, MT Melsungen (89/212).
Janus Daði Smárason, Pick Szeged (98/176).
Kristján Örn Kristjánsson, Donni, Skanderborg AGF (37/69).
Orri Freyr Þorkelsson, Sporting (28/78).
Ómar Ingi Magnússon, SC Magdeburg (90/329).
Óðinn Þór Ríkharðsson, Kadetten Schaffhausen (54/160).
Reynir Þór Stefánsson, Fram (0/0).
Viggó Kristjánsson, HC Erlangen (73/210).
Ýmir Örn Gíslason, Göppingen (104/46).
Þorsteinn Leó Gunnarsson, FC Porto (17/34).


Undankeppni EM karla “26: úrslit leikja og staðan
A-landslið karla – fréttasíða.