Kósovó, Lettland og Tyrkland komust áfram úr fyrstu umferð forkeppni heimsmeistaramóts karla í handknattelik sem lauk í gær.
Kósovó vann Bretland í tveimur leikjum samanlagt 67:56. Lettar, með Alexander Petersson í þjálfarateyminu, hafði betur í tveimur leikjum við landslið Lúxemborgar, 62:53. Tyrkir unnu Kýpurbúa, 68:46, í tveimur viðureignum.
Næsta stig forkeppninnar í mars
Á næst stigi undankeppninnar, sem leikin verður í mars, taka þátt Lettland, Kósovó og Tyrkland í neðri styrkleikaflokki með Ísrael, Finnlandi, Belgíu, Slóvakíu og Litáen.
Í hinum flokknum, og þar af leiðandi andstæðingar verða Bosnía, Grikkland og landslið sem hafna í sætum 19 til 24 á EM landsliða sem fram fer í janúar.
Af þeim komast átta á þriðja og síðasta stigið þar sem íslenska landsliðið verður væntanlega á meðal þátttökuliða. Þriðji og síðasti hluti forkeppni verður leikinn í maí. Þá kljást 20 landslið um 10 farseðla á HM karla sem fram fer í Þýskalandi í janúar 2027.




