- Auglýsing -

Tinna Valgerður verður áfram með KA/Þór

Tinna Valgerður Gísladóttir hefur skrifað undir nýjan samning við KA/Þór. Ljósmynd/Egill Bjarni Friðjónsson
- Auglýsing -


KA/Þór undirbýr sig nú af kappi fyrir baráttuna í efstu deildinni og var lykilskref tekið í þeirri vegferð í gær þegar Tinna Valgerður Gísladóttir skrifaði undir nýjan samning við félagið.

Tinna gekk í raðir KA/Þórs í upphafi árs á lánssamning frá Gróttu og kom sterk inn er KA/Þór tryggði sér sigur í Grill 66-deildinni án þess að tapa leik.


Tinna Valgerður, sem er örvhent skytta sem getur einnig leikið í horni, lék alls 10 leiki með KA/Þór og gerði í þeim alls 56 mörk. Hún kom norður eins og áður segir frá Gróttu en þar áður var hún í Þýskalandi þar sem hún bjó með Bjarna Ófeigi Valdimarssyni leikmanni KA.

„Það er ákaflega jákvætt að Tinna sé búin að skrifa undir og alfarið gengin í raðir KA/Þórs og ljóst að hún mun spila stórt hlutverk er liðið reynir að festa sig aftur í sessi meðal þeirra bestu,” segir í tilkynningu frá KA/Þór.


Konur – helstu félagaskipti 2025

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -