- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Tólf marka sigur og gleðitíðindi hjá ÍBV

- Auglýsing -

Eyjamenn tóku upp þráðinn þar sem frá var horfið í Olísdeild karla í handknattleik á heimavelli í kvöld með öruggum sigri á Selfossi, 40:28. ÍBV er í sjötta sæti deildarinnar með 20 stig en Selfoss er í 10. sæti.


Hákon Daði Styrmisson lék með ÍBV eftir nokkurra ára fjarveru við handknattleik í Þýskalandi. Hann flutti heim um áramótin og gekk til liðs við ÍBV og samdi til vertíðarloka. Hákon Daði skoraði sex mörk og var næstmarkahæstur.

Fleiri góðar fréttir má segja af ÍBV-liðinu. Elís Þór Aðalsteinsson lék á ný eftir að hafa verið fjarverandi vegna ristarbrots síðan í lok október og stóð sig vel þann tíma sem hann var með.

Hinn gamalreyndi línumaður, Garðar Benedikt Sigurjónsson, dustaði ryk af gömlu skónum og skoraði eitt mark í sigrinum örugga.

Besti leikmaður ÍBV var markvörðurinn Petar Jokanovic sem varði 16 skot, þar af tvö vítaköst.

Staðan og næstu leikir í Olísdeildum.

ÍBV – Selfoss 40:28 (18:11).

Mörk ÍBV: Sveinn José Rivera 7, Hákon Daði Styrmisson 6, Andri Erlingsson 6, Elís Þór Aðalsteinsson 4, Dagur Arnarsson 3/1, Kristófer Ísak Bárðarson 3, Haukur Leó Magnússon 3, Ívar Bessi Viðarsson 2, Daníel Þór Ingason 2, Garðar Benedikt Sigurjónsson 1, Anton Frans Sigurðsson 1, Heimir Halldór Sigurjónsson 1, Egill Oddgeir Stefánsson 1.
Varin skot: Petar Jokanovic 16/2, 44,4% – Morgan Goði Garner 5, 38,5%.

Mörk Selfoss: Gunnar Kári Bragason 5, Tryggvi Sigurberg Traustason 5, Sölvi Svavarsson 4, Hákon Garri Gestsson 3, Guðjón Baldur Ómarsson 3, Hannes Höskuldsson 3/1, Valdimar Örn Ingvarsson 2, Anton Breki Hjaltason 2, Árni Ísleifsson 1.
Varin skot: Alexander Hrafnkelsson 11, 26,8% – Philipp Seidemann 1/1, 11,1%.

Tölfræði leiksins hjá HBStatz.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -