Nýliðum Olísdeildar kvenna, KA/Þór, hefur borist hressilegur liðsauki fyrir átökin á næstu leiktíð. Samið hefur verið þrjá erlendar konur um að leika með liðinu, tvær þeirra eru ungverskrar, Bernadett Réka Leiner, markvörður, og Anna Petrovics en sú þriðja, Trude Blestrud Håkonsen, er norsk. Frá komu þessa liðsauka var greint síðdegis.
Håkonsen er spennandi örvhent skytta sem einnig getur leikið í horninu en hún er fædd árið 1994 og kemur frá liði Junkeren þar sem hún hefur leikið frá árinu 2020. Hún hefur verið í lykilhlutverki í liði Junkeren en á síðustu leiktíð gerði hún 92 mörk í 22 leikjum en liðið lék í 2. deild. Junkeren er staðsett í norður Noregi þannig að hún ætti að þekkja það vel að vera staðsett norðarlega á hnettinum.
Bernadett Réka Leiner er ungverskur markmaður sem er 26 ára gömul og hún Anna Petrovics er Ungverji sem getur leyst allar stöður fyrir utan. Hún er 23 ára gömul.
Ungverjarnir voru saman hjá austurríska liðinu Greenpower JAGS á síðustu leiktíð.
Þurfti að breikka hópinn
Stefán Guðnason formaður kvennaráðs KA/Þórs var kampakátur við undirritunina og hafði þetta að segja: „Við viljum að sjálfsögðu spila eins mikið og hægt er á okkar heimastelpum, en það var alveg ljóst að það þurfti að breikka hópinn og styrkja fyrir baráttuna í efstudeild. Koma þremenninganna er klárlega lykilskref fyrir hópinn okkar og teljum við okkur vera að taka rétt skref í framþróun okkar uppöldu leikmanna. Jonni þjálfari hefur margoft sýnt að hann er gríðarlega öflugur í að vinna með og þróa unga leikmenn áfram og verður gaman að sjá hópinn taka næstu skref með þeim Bernadett, Önnu og Trude innanborðs.“
Konur – helstu félagaskipti 2025