- Auglýsing -
Tveimur af þremur leikjum sem voru á dagskrá Olísdeildar kvenna í handknattleik annað kvöld hefur verið frestað. Rétt áðan tilkynnti mótanefnd HSÍ að viðureign ÍBV og KA/Þór hafi verið frestað vegna covid smita.
Í gær var leik Stjörnunnar og HK einnig frestað af sömu ástæðu. Var það þriðji leikurinn í röð hjá HK sem ekki er hægt að koma við vegna smita og sóttkvía.
Enn sem komið er standa vonir til að Fram og Afturelding mætist kl. 19.30 annað kvöld í Framhúsinu. Þeim leik hefur einu sinni verið frestað vegna veirunnar sem setur víða strik í reikninginn.
Stöðuna í Olísdeild kvenna má sjá hér.
- Auglýsing -