Andri Már Rúnarsson landsliðsmaður í handknattleik er með uppsagnarákvæði í samningi sínum við þýska liðið SC DHfK Leipzig. Þetta staðfesti Rúnar Sigtryggsson, faðir Andra Más, í samtali sem birt var í gærkvöld á Sýn og síðar hjá Vísir.
Þegar Andri Már samdi við SC DHfK Leipzig 2023 þá var sett inn klásúla í samninginn þess efnis að ef Rúnari yrði sagt upp störfum sem þjálfari liðsins þá gæti Andri Már sagt samningi sínum lausum. Rúnar var leystur frá störfum 11. júní.
Spurður sagði Rúnar það geta gerst að Andri Már virki þetta ákvæði og færi sig um set. Rímar það við frétt SportBild í Þýskalandi í síðustu viku og handbolti.is sagði frá.
„Það er hans að ákveða það með sínum umboðsmanni,“ svarað Rúnar í fyrrgreindu við tali við Sýn/Vísir spurður hvort líklegt væri að Andri Már hyggist segja um samningi sínum.
Í áðurnefndri frétt SportBild voru þrjú lið nefnd til sögunnar sem hugsanlegur næsti áfangastaður Andra Más; HC Erlangen í Þýskalandi, PSG í Frakklandi og GOG í Danmörku.