-Auglýsing-

Vaka Líf sleit krossband

- Auglýsing -

Vaka Líf Kristinsdóttir, einn af lykilmönnum ÍR, varð nýverið fyrir því óláni að slíta krossband í hné og verður af þeim sökum frá keppni næsta árið eða svo. Vaka Líf meiddist í æfingaleik með ÍR gegn FH sem leikinn var í landsleikjahléinu fyrr í mánuðinum.

Handkastið greinir frá ótíðindunum og vísar til orða Grétars Áka Andersen, þjálfara ÍR, þeim til staðfestingar.

Dagskráin: Næst síðasta umferð í kvöld


Vaka Líf hefur leikið vel á tímabilinu með öflugu liði ÍR sem er í fjórða sæti Olísdeildarinnar þegar tvær umferðir eru óleiknar. Hefur hún skorað 81 mark á tímabilinu og er næstmarkahæst hjá ÍR-ingum, sem berjast við Hauka um þriðja sætið. Bæði lið fara í fyrstu umferð úrslitakeppninnar.

ÍR vann öruggan heimasigur á KA/Þór í fjarveru Vöku Lífar um liðna helgi og heimsækir ÍBV til Vestmannaeyja í 20. umferð í kvöld. Selfoss kemur svo í heimsókn til ÍR í Skógarselið í lokaumferðinni á laugardag.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -