- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -

Valsarar enduðu tímabilið á silfurverðlaunum í Lille

Valsliðið sem vann silfurverðlaun á móti í Lille í Frakklandi um helgina. Ljósmynd/Valur
- Auglýsing -


Strákarnir í 3. flokki Vals bundu enda á frábært keppnistímabil með glæsilegri frammistöðu á sterku móti sem fram fór í Lille, Frakklandi um hvítasunnuhelgina. Þeir léku til úrslita á mótinu og koma heim með silfurverðlaun í farteskinu.

Í liðið sem fór til Lille vantaði alla leikmenn á elsta ári 3.flokks en sex leikmenn voru að spila með 17 ára landsliði Íslands á Nordic Cup í Færeyjum á sama tíma.


Valsstrákarnir sýndu strax í byrjun mótsins í Lille að þeir ætluðu sér stóra hluti og unnu sinn riðil örugglega.

Í 8-liða úrslitum unnu þeir Tumba frá Svíþjóð, 22:19.

Í undanúrslitum báru Valsstrákarnir sigurorð af Talent Plzen frá Tékklandi eftir vítakastkeppni en jafnt var í leikslok, 15:15.

Í úrslitum töpuðu Valsstrákarnir fyrir franska liðinu Saarreborg 22:19, en jafnt var á með liðunum þegar tvær mínútur voru til leiksloka.

Frá vinstri: Daníel Montoro, Vilhjálmur Geir Geirsson og Jóhann Ágústsson með verðlaun sín. Ljósmynd/Valur

Vilhjálmur Geir Geirsson, Daníel Montoro og markmaðurinn Jóhann Ágústsson voru valdir í úrvalslið mótsins.

3. flokkur Vals varð í 2. sæti í deildar- og bikarkeppni HSÍ og lauk tímabilinu hér heima á að verða Íslandsmeistarar.

Valsliðið sem vann silfurverðlaun á móti í Lille í Frakklandi um helgina. Ljósmynd/Valur
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -