- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Valur vann síðasta undanúrslitasætið

- Auglýsing -

Fjórða og síðasta sætið sem var óráðstafað í undanúrslitum bikarkeppni kvenna í handknattleik kemur í hlut Vals eftir 10 marka sigur liðsins á FH, 31:21, í Kaplakrika í kvöld.

Fram, bikarmeistarar Hauka og KA/Þór verða auk Vals með nöfn sín í skálunum þegar dregið verður í undanúrslit í hádeginu á föstudag. Undanúrslitaleikirnir fara fram 25. febrúar í Kuehne+Nagel-höllinni á Ásvöllum.

Valur trónir á toppi Olísdeildar kvenna meðan FH er í neðri hluta Grill 66-deildar. Þar af leiðandi var vart hægt að reikna með spennandi viðureign í Kaplakrika. Anton Rúnarsson þjálfari Vals dreifði álaginu á milli leikmanna sinna auk þess sem landsliðskonan Thea Imani Sturludóttir var ekki með.


Mörk FH: Thelma Dögg Einarsdóttir 7, Dagný Þorgilsdóttir 3, Katrín Ósk Ástþórsdóttir 3, Eva Guðrúnardóttir Long 2, Ísabella Jórunn Mueller 2, Telma Medos 2, Gyða Kristín Ásgeirsdóttir 1, Hafdís Hera Arnþórsdóttir 1.
Varin skot: Szonja Szöke 13.

Mörk Vals: Mariam Eradze 7, Ágústa Rún Jónasdóttir 5, Þórey Anna Ásgeirsdóttir 4, Sara Lind Fróðadóttir 3, Arna Karitas Eiríksdóttir 2, Auður Ester Gestsdóttir 2, Ásthildur Jóna Þórhallsdóttir 2, Lilja Ágústsdóttir 2, Lovísa Thompson 2, Guðrún Hekla Traustadóttir 1, Laufey Helga Óskarsdóttir 1.
Varin skot: Hafdís Renötudóttir 12, Elísabet Millý Elíasardóttir 4.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -