„Það tók smá tíma að hrista þá af okkur eins og var alveg viðbúið,“ sagði Haukur Þrastarson í samtali við handbolta.is eftir öruggan sigur á Póllandi í annarri umferð F-riðils Evrópumótsins í Kristianstad Arena í Svíþjóð í kvöld.
„Við vorum alveg búnir undir það. En við vorum kannski að fara svolítið illa með boltann og einhver dauðafæri í byrjun. Svo kom það og þá náðum við ágætis forskoti og kláruðum þetta vel,“ hélt Haukur áfram.
Pólland lá í valnum og Ísland í milliriðil
Held að mér hafi tekist það
Staðan í hálfleik var 13:10 en í síðari hálfleik valtaði íslenska liðið yfir það pólska.
„Við töluðum um það í hálfleik að laga þessa einföldu hluti, tæknifeila og klára færin. Um leið og það kom leit þetta strax betur út,“ sagði hann.
Haukur kom mjög sterkur inn í leikinn eftir leikhlé á 20. mínútu.
„Já, ég var staðráðinn í að leggja mitt af mörkum og koma með eitthvað að borðinu. Ég held að mér hafi tekist það,“ sagði hann.
Fullur fókus á Ungverjaland
Sigurinn var sannfærandi, 31:23, þegar upp var staðið.
„Þetta tók smá tíma en við héldum bara einbeitingu. Við vorum ekkert að fara í neina örvæntingu þó að við værum ekki búnir að ná einhverju forskoti strax í byrjun eða eitthvað í þá áttina. Við gerðum þetta bara vel í 60 mínútur,“ sagði Haukur.
Næst er leikur gegn Ungverjalandi á þriðjudagskvöld þar sem íslenska liðið stefnir að því að klára leikinn vel til þess að fara með stig í milliriðilinn.
„Já, klárlega. Það er það eina sem kemst að. Núna eru þessir tveir leikir frá og það er fullur fókus á það,“ sagði Haukur Þrastarson að lokum í samtali við handbolta.is.




