One Veszprém hafði betur gegn Pick Szeged í fyrstu viðureign liðanna um ungverska meistaratitilinn í handknattleik á heimavelli í dag, 34:32. Þetta er í 25. skipti sem þessir höfuðandstæðingar í ungverskum handknattleik mætast í úrslitaeinvígi um meistaratitilinn.
Aron Pálmarsson lék sinn 100. leik fyrir Veszprém en skoraði ekki í þremur tilraunum. Honum var einu sinni vikið af leikvelli. Bjarki Már Elísson var ekki í leikmannahóp One Veszprém.
Janus Daði Smárason fór mikinn og skoraði sjö mörk í átta skotum fyrir Pick Szeged. Næsta viðureign liðanna verður í Szeged á miðvikudagskvöld.
Janus Daði var markahæstur ásamt Sebastian Frimmel.
Hjá One Veszprém var Frakkinn huga Descat atkvæðamestur með 12 mörk í 16 skotum. Þrjú markanna skoraði Descat úr vítaköstum.
Leikmenn Pick Szeged voru með yfirhöndina í leiknum í Veszprém í kvöld í 48 mínútur. Heimamenn komust fyrst yfir með marki Sergei Kostorov á 49. mínútu, 28:27. Eftir það var Veszprém með yfirhöndina og náði mest þriggja marka forskoti.