- Auglýsing -

Viktor flytur frá Akureyri til Kollafjarðar

Viktor Lekve t.h. ásamt forsvarskonu KÍF. Ljósmynd/KÍF
- Auglýsing -


Handknattleiksþjálfarinn Viktor Lekve ætlar að söðla um og flytja til Kollafjarðar í Færeyjum. Hann hefur verið ráðinn þjálfari meistaraflokksliðs félagsins, KÍF. Samhliða verður hann yfirþjálfari yngri flokka félagsins.

Undanfarið ár hefur Viktor þjálfað hjá KA á Akureyri m.a. þriðja flokk og U-liðið. Áður þjálfaði Viktor um árabil hjá Fjölni við góðan orðstír. Hann var m.a. aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla frá 2022 til 2024 og starfaði á þeim tíma með Sverri Eyjólfssyni.


KÍF í Kollafirði hefur á undanförnum árum verið með eitt af betri karlaliðum Færeyja. Síðast lék KÍF til úrslita um meistaratitilinn vorið 2022 en tapaði fyrir VÍF Vestmanna.

Mikill uppgangur hefur verið í handknattleik í Færeyjum á síðustu árum og landsliðin náð framúrskarandi árangri. Áhuginn er því mikill.

Akureyringurinn Hörður Fannar Sigþórsson lék um árabil með KÍF en lagði skóna endalega upp á hillu fyrir þremur árum.


Þjálfarar – helstu breytingar 2025

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -