- Auglýsing -
- Auglýsing -

Viktor Gísli er klár í slaginn – Donni og Óðinn hvíla sig í dag

Viktor Gísli Hallgrímsson markvörður íslenska landsliðsins og pólska meistaraliðsins Wisla Plock. Mynd/Hafliði Breiðfjörð
- Auglýsing -

Viktor Gísli Hallgrímsson hefur jafnað sig eftir veikindi er klár í slaginn með íslenska landsliðinu í handknattleik gegn Serbíu í dag í fyrstu umferð Evrópumótsins í handknattleik. Snorri Steinn Guðjónsson landsliðsþjálfari tilkynnti fyrir stundu hvaða 16 leikmenn hann teflir fram í upphafsleiknum á EM sem hefst klukkan 17.

Handbolti.is fylgist með leiknum í textalýsingu.

Kristján Örn Kristjánsson, Donni, og Óðinn Þór Ríkharðsson verður utan liðsins í dag. Einar Þorsteinn Ólafsson og Stiven Tobar Valencia leika sína fyrstu leiki í lokakeppni EM.

Markverðir:
Björgvin Páll Gústavsson, Valur (260/21).
Viktor Gísli Hallgrímsson, HBC Nantes (51/1).
Aðrir leikmenn:
Arnar Freyr Arnarsson, MT Melsungen (87/94).
Aron Pálmarsson, FH (170/649).
Bjarki Már Elísson, Telekom Veszprém (107/372).
Einar Þorsteinn Ólafsson, Fredericia (4/0).
Elliði Snær Viðarsson, VfL Gummersbach (39/76).
Elvar Örn Jónsson, MT Melsungen (68/160).
Gísli Þorgeir Kristjánsson, SC Magdeburg (53/121).
Haukur Þrastarson, Barlinek Industria Kielce (25/32).
Janus Daði Smárason, SC Magdeburg (74/118).
Ómar Ingi Magnússon, SC Magdeburg (76/361).
Sigvaldi Björn Guðjónsson, Kolstad Håndball (65/184).
Stiven Tobar Valencia, Benfica (8/10).
Viggó Kristjánsson, SC DHfK Leipzig Handball (46/120).
Ýmir Örn Gíslason, Rhein-Neckar Löwen (78/35).

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -