- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Vonir standa til að Moustafa hætti eftir 4 ár – aldurshámark samþykkt

- Auglýsing -

Vonir standa til þess að næstu fjögur ár verði þau síðustu hjá Hassan Moustafa í stól forseta Alþjóða handknattleikssambandsins, IHF, vegna þess að á þingi sambandsins, sem lauk í gær, var samþykkt aldurshámark á frambjóðendur til stjórnarsetu hjá IHF.


Moustafa endurkjörinn með yfirburðum

Tillaga gríska handknattleikssambandsins um að enginn sem væri orðinn 75 ára eða eldri þingdegi megi bjóða sig fram til stjórnarstarfa hjá IHF var samþykkt með 75% atkvæða. Þar með er vandséð að Moustafa, sem verður liðlega 85 ára gamall þegar kjörtímabil hans rennur út eftir fjögur ár, geti gefið kost á sér til endurkjörs.


Ekki er hægt að útiloka að samþykktin verði felld úr gildi eða henni skipt út fyrir nýja tillögu fyrir árið 2029 enda hefur það sýnt sig að Moustafa ræður því sem hann vill ráða innan IHF.

Frakkinn fékk launaðan stuðninginn við Moustafa

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -