Vonir leikmanna MT Melsungen um þýska meistaratitilinn runnu nánast út í sandinn í kvöld þegar liðið gerði jafntefli við Lemgo, 26:26, á heimavelli í næst síðustu umferð þýsku 1. deildarinnar í handknattleik. Melsungen er stigi á eftir Füchse Berlin sem á tvo leiki eftir óleikna en Melsungen á einn. Berlínarliðið á eftir leiki við Gummersbach og Rhein-Neckar Löwen og þarf eitt stig til þess að ná a.m.k. öðru sæti.
Magdeburg á von
Magdeburg á enn möguleika á titlinum en nægir ekki að vinna sína leiki sem eftir er heldur þarf liðið á að Füchse Berlin tapi a.m.k. annarri viðureigninni. Magdeburg er að leika við Flensburg þegar þetta er skrifað.
Fjögur og fjögur hjá Elvari Erni
Elvar Örn Jónsson skorað fjögur mörk fyrir MT Melsungen og gaf fjórar stoðsendingar. Arnar Freyr Arnarsson skoraði ekki mark. Ian Barrufet skoraði sjö mörk og var markahæstur Melsungen-manna.
Tim Suton var markahæstur hjá Lemgo með sjö mörk en liðið var fimm mörkum yfir í hálfleik, 16:11.
Leipzig tapaði illa heima – Erlangen í fallsæti
Leikmenn Bietigheim hafa ekki lagt árar í bát í botnbaráttunni þrátt fyrir tap fyrir Erlangen á sunnudaginn. Bietigheim vann níu marka sigur á Leipzig, undir stjórn Rúnars Sigtryggssonar, 34:25, í Leipzig. Þar með komst Bietigheim upp í 16.sæti deildarinnar og sendi Erlangen niður í 17. sæti og nær síðasta sætið fyrir lokaumferðina á sunnudaginn. Eitt stig skilur liðin að, Bietigheim í vil.
Erlangen sækir Wetzlar heim í síðustu umferð meðan Bietigheim fær Magdeburg í heimsókn.
Andri Már Rúnarsson lék afar vel fyrir Leipzig-liðið í kvöld í tapinu. Hann skoraði átta mörk, fjögur þeirra úr vítaköstum. Honum var einu sinni vikið af leikvelli.
Magdeburgar-menn gera sitt til þess að ná titlinum
Staðan: