Yfirlýsing frá kvennalandsliði Íslands í handknattleik
„Við leikmenn kvennalandsliðs Íslands í handbolta teljum mikilvægt að koma reynslu okkar á framfæri eftir að hafa spilað tvo umspilsleiki gegn landsliði Ísraels í þessari viku. Það er tímabært að alþjóðleg íþróttahreyfing – og íþróttayfirvöld hér á landi – endurskoði afstöðu sína gagnvart þátttöku Ísraels í alþjóðlegum keppnum á meðan hernaðaraðgerðir þeirra á Gaza halda áfram.
Að spila tvo landsleiki gegn Ísrael var ekki sjálfsagt fyrir okkur. Við stóðum frammi fyrir áskorun sem við höfum ekki áður þurft að horfast í augu við: Að spila við fulltrúa ríkis sem ber ábyrgð á dauða ótal saklausra borgara – eða hafna þátttöku og þar með láta ísraelska landsliðið fara áfram. Við ákváðum að spila – af því við vildum sjá íslenska fánann á heimsmeistaramótinu en ekki þann ísraelska.
Það eru ekki eðlilegar eða ásættanlegar aðstæður þegar landslið þarf að spila tvo leiki fyrir luktum dyrum, mæta í lögreglufylgd og hafa áhyggjur af öryggi sínu bæði á vellinum og utan hans. Við viljum spila handbolta af ástríðu, fyrir land og þjóð – en við viljum líka að þær aðstæður sem okkur er gert að spila við séu í takt við grundvallargildi íþrótta um frið, virðingu og samstöðu. Til að þessi gildi, og þær reglur alþjóðlegra íþróttasamtaka sem eiga að tryggja framkvæmd þeirra, haldi gildi sinni, þá er eðlilegt að spyrja: Hvers vegna fær Ísrael enn að taka þátt í alþjóðlegum keppnum?
Við skorum á HSÍ og ÍSÍ að koma okkar reynslu á framfæri við viðeigandi alþjóðasambönd og fara fram á að Ísrael verði meinað að taka þátt í alþjóðlegu íþróttaviðburðum meðan á hernaði þeirra stendur. Við viljum rödd okkar heyrist – sem íþróttakvenna, sem fulltrúa Íslands, og sem manneskja. Við stöndum saman í þeirri von að afstaða okkar stuðli að breytingum sem endurspegla þá mannlega reisn sem íþróttir eiga að standa fyrir.“