Íslendingaliðið IFK Kristianstad stendur vel að vígi í keppni við Malmö í átta liða úrslitum sænsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik karla. Kristianstad vann Malmö öðru sinni í dag og að þessu sinni í Kristianstad, 31:28. Liðið hefur þar með tvo...
Ísland og Grikkland mætast í forkeppni HM kvenna í handknattleik í A1 Arena SC Boris Trajkovski-íþróttahöllinni í Skopje klukkan 18. Hægt er að fylgjast með leiknum í streymi hér fyrir neðan.
Ísland tapaði fyrir Norður-Makedóníu í forkeppninni í gær, 24:17,...
Norður-Makedónía og Ísland mættust í forkeppni HM í handknattleik kvenna í Skopje í gær. Norður-Makdedónía vann leikinn, 24:17. Íslenska landsliðið mætir gríska landsliðinu í sömu keppni í kvöld. Leiknum verður streymt á handbolti.is.
Hér er syrpa af myndum frá leiknum...
Arnar Pétursson, landsliðsþjálfari kvenna í handknattleik hefur valið þá sextán leikmenn sem mæta Grikklandi í kvöld í forkeppni HM sem fram fer í Skopje. Viðureignin hefst klukkan 18 og verður streymi frá henni á handbolti.is.
Ein breyting er á...
Leikmenn ungmennaliðs Fram hafa sannarlega ekki lagt árar í bát þótt keppnistímabilið hafi verið þeim mótdrægt og ekkert stig komið í safnið í fyrstu 12 leikjum tímabilsins.
Þeir veittu Fjölnismönnum hörku keppni í gærkvöld og uppskáru að leikslokum sitt...
Fjórir leikmenn íslenska kvennalandsliðsins tóku þátt í sínum fyrsta A-landsleik í gær þegar íslenska landsliðið mættir Norður-Makedóníu í fyrstu umferð forkeppni HM í A1 Arena SC Boris Trajkovski-íþróttahöllinni í Skopje.
Um er að ræða Katrínu Ósk Magnúsdóttur, markvörð Fram,...
Ungmennalið Hauka gerði sér lítið fyrir í gærkvöld og lagði liðsmenn Kríu með tveggja marka mun í Olísdeild karla í handknattleik en leikið var í Schenkerhöllinni á Ásvöllum, 28:26. Haukar voru einnig yfir að loknum fyrri hálfleik, 12:9.
Lið Kríu...
Einn leikur er á dagskrá í Grill 66-deild karla í handknattleik í dag og er það eina viðureignin sem er á dagskrá í tveimur efstu deildum karla og kvenna á Íslandsmótinu í dag. Leikmenn Harðar á Ísafirði koma í...
Eyjamaðurinn og landsliðsmaðurinn Elliði Snær Viðarsson leikur ekki með Gummersbach í kvöld þegar liðið sækir Hüttenberg heim í þýsku 2.deildinni í handknattleik. Hann er meiddur á vinstri ökkla eða hæl og bætist þar með á nokkuð langan lista leikmanna...
Danski landsliðsmaðurinn Henrik Møllgaard er nýjast fórnarlamb kórónuveirunnar en nærri helmingur leikmanna danska landsliðsins sem lék í tvígang við Norður-Makedóníu í undankeppni EM hefur greinst smitaður í kjölfar leikjanna. Önnur viðureignin fór fram í Skopje en hin í Álaborg.
Danski...