Viktor Gísli Hallgrímsson kom aðeins við sögu í þremur vítaköstum þegar Nantes vann Ivry, 30:22, í frönsku 1. deildinni í handknattleik á heimavelli í gærkvöld. Ivan Pesic stóð annars í marki Nantes allan leikinn og gerði það svikalaust. Nantes...
ÍH stökk upp í efsta sæti í 2. deildar karla í handknattleik í kvöld eftir öruggan sigur á Hvíta riddaranum að Varmá í Mosfellsbæ, 35:27. Bæði lið söfnuðu að sér leikmönnum fyrir tímabilið enda stefna þau hátt. Hinsvegar varð...
Víkingar unnu í kvöld annan leik sinn í röð í Olísdeild karla í handknattleik þegar þeir lögðu Gróttu, 30:24, í sjöttu umferð deildarinnar. Leikurinn fór fram í Safamýri. Þar með eru Víkingar, sem ekki þóttu líklegir til stórræða í...
Eyjamaðurinn Elliði Snær Viðarsson fór með himinskautum í kvöld í fimmta sigurleik Gummersbach í röð í þýsku úrvalsdeildinni þegar liðið lagði Eisenach, 37:31, á heimavelli. Elliði Snær skoraði 11 mörk í 12 skotum og átti einnig tvær stoðsendingar. Hann...
Fjölnismenn tylltu sér á topp Grill 66-deildar karla í handknattleik karla í kvöld með stórsigri ÍR, 37:27, á heimavelli ÍR-inga í Skógarseli í upphafsleik 4. umferðar deildarinnar. Fjölnismenn hafa sjö stig eftir fjóra leiki en ÍR-ingar eru stigi á...
Fagnaðarfundir voru á Ásvöllum á miðvikudagskvöld þegar Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, og Colin Wills hittust eftir að leik Íslands og Lúxemborgar í undankeppni Evrópumóts kvenna var lokið.
Wills var eftirlitsmaður Handknattleikssambands Evrópu, EHF, á viðureigninni. Hann var á...
Handknattleikssamband Evrópu, EHF, hefur frestað um óákveðinn tíma þremur rimmum ísraelskra karlaliða í Evrópubikarkeppninni í handknattleik karla sem fram áttu að fara 21. og 22. október. Fyrr í vikunni var tveimur leikjum kvennalandsliðs Ísrael í undankeppni Evópumótsins frestað um...
Sjöttu umferð Olísdeildar karla lýkur með þremur leikjum í kvöld. Þremur viðureignum var flýtt vegna leikja Aftureldingar, FH, ÍBV og Vals í Evrópubikarkeppninni um helgina.
Einnig mætast í Skógarseli, heimavelli ÍR, tvö efstu lið Grill 66-deildar karla, ÍR og Fjölnir,...
Dómarar og eftirlitsmenn verða á ferð og flugi næstu daga og það fleiri en sagt var frá í gærmorgun. Svavar Ólafur Pétursson og Sigurður Hjörtur Þrastarson dæma leik Riihimäen Cocks og BSV Bern í Evrópubikarkeppni karla í handknattleik í...
Hvorki Arnór Snær Óskarsson né Ýmir Örn Gíslason skoruðu mark fyrir Rhein-Nekar Löwen í kvöld þegar Löwen tapaði í kvöld á útivelli fyrir, Füchse Berlin, efsta liði þýsku 1. deildarinnar í handknattleik, 38:32. Berlínarliðið var þremur mörkum yfir að...