„Þetta er bara frábær tilfinning og stórkostlegt að enda keppnina með bikar í höndum,“ sagði Andrea Jacobsen landsliðskona í handknattleik og hluti af sigurliði Íslands í keppninni um forsetabikarinn á heimsmeistaramótinu þegar handbolti.is hitti hana að máli eftir sigurinn...
Danir tryggðu sér fjórða og síðasta sæti í undanúrslitum heimsmeistaramóts kvenna í handknattleik í kvöld með því að leggja Svartfellinga, 26:24, í Jyske Bank Boxen íþróttahöllinni í Herning á Jótlandi. Danir mæta heims- og Evrópumeisturum Noregs í undanúrslitum á...
„Þetta var mjög skemmtilegur og erfiður leikur og hreint geggjað að ná að klára þetta,“ sagði Berglind Þorsteinsdóttir ein af liðskonum íslenska landsliðsins eftir sigurinn á Kongó, 30:28, sem tryggði íslenska landsliðinu forsetabikarinn á heimsmeistaramótinu í handknattleik kvenna.
Berglind lék...
Stúlkurnar skorðu 8 mörk eftir gegnumbrot þegar þær lögðu Kongó að velli, 30:28. Elín Rósa Magnúsdóttir og Thea Imani Sturludóttir skoruðu þrjú mörk hvor og Sandra Erlingsdóttir tvö.
Sex mörk voru skoruð úr horni og skoraði Þórey Rósa Stefánsdóttir fjögur...
„Það er frábært að ljúka þessu móti með sigri og bikar í hönd," sagði Sunna Jónsdóttir fyrirliði íslenska landsliðsins í samtali við handbolta.is eftir sigurinn á Kongó, 30:28, í úrslitaleiknum um forsetabikarinn í handknattleik kvenna í Arena Nord í...
Íslenska landsliðið í handknattleik vann Kongó í úrslitaleiknum um forsetabikarinn á heimsmeistaramóti kvenna í handknattleik í Arena Nord í kvöld, 30:28, eftir að jafnt var í hálfleik, 14:14. Forsetabikarinn fer til Íslands!
Þetta er fyrsti bikarinn sem kvennalandsliðið vinnur í...
Keppnin um forsetabikarinn á heimsmeistaramóti kvenna í handknattleik hefst miðvikudaginn 6. desember og lýkur með úrslitaleik 13. desember. Leikið er í tveimur fjögurra liða liða riðlum í Arena Nord í Frederikshavn á Norður Jótlandi í Danmörku.Landsliðin átta sem taka...
Sigvaldi Björn Guðjónsson skoraði fimm mörk, þar af tvö úr vítaköstum, þegar Kolstad vann Bergen Håndball, 38:30, í þrettánda leik liðsins í norsku úrvalsdeildinni í Þrándheimi í kvöld. Kolstad, var marki undir í hálfleik, 16:15. Leikmenn bitu í skjaldarrendur...
Sænska landsliðið varð það þriðja til þess að tryggja sér sæti í undanúrslitum heimsmeistaramóts kvenna í handknattleik. Svíar fóru illa með Þjóðverja í Herning í kvöld, 27:20 eftir að hafa verið yfir, 16:6, að loknum fyrri hálfleik.
Svíar mæta Frökkum...