Einn leikur er á dagskrá í úrslitakeppni Olísdeildar karla í kvöld. Valur tekur á móti KA í þriðja leik liðanna í undanúrslitum í N1 höllinni á Hlíðarenda klukkan 19. Valur er 2:0 yfir í einvíginu og tryggir sér því...
Ísland verður í fjórða og neðsta styrkleikaflokki þegar dregið verður í riðla fyrir lokakeppni Evrópumóts kvenna í handknattleik í Katowice í Póllandi síðdegis næsta fimmtudag.
Nöfn 24 þjóða verða í skálunum sem dregið verður úr og hefur þeim verið deilt...
Kristján Örn Kristjánsson, Donni, skoraði sjö mörk og var markahæstur leikmanna Skanderborg í jafntefli við Mors-Thy, 36:36, í annarri umferð úrslitakeppni dönsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik í gær. Einnig átti Donni fjórar stoðsendingar í þessum jafna og skemmtilega leik.
Skanderborg er...
„Ég er virkilega glaður að þetta tókst hjá okkur og er um leið mjög stoltur af stelpunum,“ sagði Arnar Pétursson landsliðsþjálfari kvenna í handknattleik þegar handbolti.is náðu aðeins á hann eftir sigurinn á Portúgal á Ásvöllum síðdegis. Sigurinn tryggði...
Undankeppni Evrópumóts kvenna í handknattleik 2026 hófst miðvikudaginn 15. október 2025 og lauk í dag, sunnudaginn 12. apríl 2026. Leikið var í sex fjögurra liða riðlum. Tvö efstu lið hvers riðils auk fjögurra liða með bestan árangur í þriðja...
Ásamt Íslandi tryggðu fimm þjóðir til viðbótar sér þátttökurétt á EM 2026 í lok ársins þegar undankeppninni lauk í dag. Þær eru Serbía, Austurríki, Grikkland, Úkraína og Norður-Makedónía.
Serbía tryggði sæti sitt með 30:21 sigri á Úkraínu í 5. riðli...
Íslenska kvennalandsliðið í handknattleik tryggði sér í dag sæti á EM 2026, sem fer fram í fimm löndum í desember, með því að leggja Portúgal örugglega að velli, 32:24, í lokaumferð 4. riðils undankeppninnar á Ásvöllum.
Ísland hafnar í þriðja...
Íslendingalið Ryger frá Stafangri tapaði fyrir Lilleström, 33:27, í lokaumferð norsku B-deildarinnar í dag og hafnar þar með í 12. sæti af 14. Það þýðir að Ryger á enn von um að halda sæti sínu í deildinni.
Ryger fer nú...
Ómar Ingi Magnússon og Gísli Þorgeir Kristjánsson fóru báðir í kostum þegar topplið SC Magdeburg vann góðan heimasigur á HC Erlangen, 35:31, í þýsku 1. deildinni í dag. Ómar Ingi var langmarkahæstur í leiknum með 14 mörk ú 16...
Elvar Ásgeirsson lék frábærlega og leiddi Ribe-Esbjerg áfram til eins marks sigurs á SønderjyskE, 36:35, í fyrsta leik liðanna í umspili fimm liða í dönsku úrvalsdeildinni. Liðin eiga það sameiginlegt að vilja forðast að mæta liði úr næstefstu deild...