- Auglýsing -
- Auglýsing -

Monthly Archives: April, 2026

Naumir sigrar hjá One Veszprém og Barcelona

Ungverska meistaraliðið One Veszprém og Spánarmeistarar Barcelona unnu andstæðinga sína í fyrri viðureignum átta liða úrslita Meistaradeildar karla í handknattleik í kvöld. One Veszprém lagði þýsku meistarana Füchse Berlin, 35:34, á heimavelli og Barcelona lagði Nantes í Frakklandi, 32:30,...

Elín Klara lék við hvern sinn fingur

Elín Klara Þorkelsdóttir lék við hvern sinn fingur í kvöld í öðrum sigri IK Sävehof á Höörs HK H 65 í undanúrslitum úrslitakeppni sænsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik, 31:28. Leikið var í Höör. Elín Klara skoraði átta mörk í níu...

Arnór Snær innsiglaði Valssigur í þriðja leiknum

Arnór Snær Óskarsson tryggði Val sigur í þriðja úrslitaleiknum við FH um Íslandsmeistaratitilinn í handknattleik karla í N1-höllinni á Hlíðarenda í kvöld, 32:30. Arnór Snær skoraði markið sem reið baggamuninn 25 sekúndum fyrir leikslok. Valur hefur þar með tvo...

Magnús Óli borinn af leikvelli

Valsmaðurinn Magnús Óli Magnússon var borinn af leikvelli seint í fyrri hálfleik þriðja úrslitaleik Vals og FH um Íslandsmeistaratitilinn í handknattleik í N1-höllinni. Magnús Óli fékk þungt högg þegar höfuð hans small í öxlinni á Ingvari Degi Gunnarssyni varnarmanni...

Tvö dýrmæt stig hjá Blæ – skiptur hlutur í Gummersbach

Blær Hinriksson og félagar í SC DHfK Leipzig unnu afar mikilvægan sigur í botnbaráttu þýsku 1. deildarinnar í kvöld er þeir lögðu lán- og Íslendingalaust lið Erlangen, 30:29, á heimavelli í 30. umferð deildarinnar. Með sigrinum færðist SC DHfK...

Teitur Örn hefur skrifað undir nýjan samning hjá Gummersbach

Landsliðsmaðurinn í handknattleik, Teitur Örn Einarsson, hefur skrifað undir nýjan eins árs samning við þýska handknattleiksliðið VfL Gummersbach. Tekur samningurinn við af tveggja ára samningi á milli félagsins og Teits Arnar sem rennur út um mitt árið. Hann verður...

Bindur enda á 29 ára feril

Spænski markvörðurinn Silvia Navarro hefur ákveðið að leggja handboltaskóna á hilluna þegar yfirstandandi tímabili lýkur. Hún er 47 ára gömul og hóf meistaraflokksferil sinn árið 1997. Ótrúlegur 29 ára ferill er því senn á enda. Navarro hefur leikið með BM...

Vill binda lóð við fótinn á Guðjóni Val

Daniel Duhr, dálkahöfundur hjá þýska miðlinum Handball World, tileinkar dálk sinn á vefnum í dag Guðjóni Val Sigurðssyni, þjálfara VfL Gummersbach. Þar sparar Duhr ekki stóru orðin og hvetur félagið til þess að framlengja samning Guðjóns Vals tafarlaust. Ellegar megi...

Adam Haukur hættur – lék með Haukum alla tíð

Adam Haukur Baumruk, leikmaður Hauka, hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna 32 ára að aldri. Hann lék allan sinn meistaraflokksferil með Haukum og lék sömuleiðis með Hafnarfjarðarliðinu í yngri flokkum. Adam Haukur greindi frá því að hann væri hættur...

Gunnar Valur skrifar undir langtímasamning

Gunnar Valur Arason, yfirþjálfari handknattleiksdeildar Fjölnis, hefur skrifað undir nýjan samning við félagið sem gildi til næstu fjögurra ára. Gunnar Valur hefur sinnt starfinu undanfarin ár og ríkir mikil ánægja með hans störf innan félagsins. „Hann hefur reynst deildinni afar verðmætur...
- Auglýsing -

Nýjustu fréttir

Fjórði Daninn bætist í leikmannahóp Þórs

Fjórði danski handknattleiksmaðurinn hefur samið við karlalið Þórs um að taka þátt í leikjum liðsins á næstu leiktíð. Nýjasta...
- Auglýsing -