Landsliðsmaðurinn í handknattleik, Teitur Örn Einarsson, hefur skrifað undir nýjan eins árs samning við þýska handknattleiksliðið VfL Gummersbach. Tekur samningurinn við af tveggja ára samningi á milli félagsins og Teits Arnar sem rennur út um mitt árið. Hann verður þar með áfram undir stjórn Guðjóns Vals Sigurðssonar.
„Teitur hefur gegnt mjög mikilvægu hlutverki undanfarnar vikur og mánuði, ekki síst í varnarleiknum sem hefur verið mjög mikilvægur þáttur í góðum árangri okkar, sérstaklega á seinni hluta tímabilsins,“ segir Christoph Schindler, framkvæmdastjóri Gummersbach, í tilkynningu félagsins. „Þess vegna erum við mjög ánægð með að geta haldið honum innan okkar raða,“ bætir Schindler við.
Teitur Örn er frá Selfossi en fór tvítugur til IFK Kristianstad og var hjá Skánarfélaginu í þrjú ár. Eftir það gekk Teitur Örn til liðs við Flensburg og var hjá félaginu í þrjú ár uns hann gekk í raðir Gummersbach sumarið 2024.
Teitur Örn hefur átt sæti í íslenska landsliðinu á síðustu stórmótum. Hann verður í eldlínunni með landsliðinu í vináttuleikjum við Egypta í Kaíró um miðjan næsta mánuð. Landsleikir Teits Arnar eru 58.



